Sósíalistar marka stefnuna með slembivali

Bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands Frétt

Slembival verður notað við mótun stefnu Sósíalistaflokks Íslands. Bráðabirgðastjórn flokksins hefur markað fyrirkomulag fjögurra fyrstu málefnahópanna. Þeir munu fjalla um heilbrigðismál, húsnæðismál, málefni samfélagssjóða og lýðræðisvæðingu samfélagsins. Þessi málefni endurspegla þá stuttu og hnitmiðuðu stefnu sem var grundvöllur stofnunar Sósíalistaflokksins.

Þrjátíu slembivöldum félögum í hverjum hópi verður falið að móta stefnu flokksins í þessum málefnum og leggja tillögur sínar fyrir Sósíalistaþing í haust. Þetta fyrirkomulag er valið í þeirri trú að ef hópur fólks sem endurspeglar almenning hefur aðgengi að bestu upplýsingum muni hann komast að skynsamlegri og góðri niðurstöðu með lýðræðislegu samtali.

Slembival tryggir að fulltrúar séu raunverulega þversnið samfélagsins sem þau koma úr og að sem flest sjónarmið komi fram meðal þeirra. Um leið er það besta vörnin gegn klíkumyndun, stéttaskiptingu og sérhagsmunagæslu í stefnumótun. Málefnahóparnir munu kalla til fólk sem hefur þekkingu eða reynslu af viðkomandi málefnum og hlýða á málflutning þess. Allir félagar í flokknum og annað áhugasamt fólk getur óskað eftir áheyrn hópanna til að koma sinni reynslu, kunnáttu eða skoðun á framfæri. Umræðan mun fara fram undir stjórn faglegra fundarstjóra sem munu tryggja að sjónarmið allra heyrist í umræðunni.

Sósíalistaþingið í haust mun taka niðurstöðu hópanna til afgreiðslu og ákvarða framhaldið, hvort stefna í öðrum málefnahópum verður unnin með sama hætti og hvort reynslan af þessari vinnu sé fyrirmynd um stefnumótun og ákvarðanatöku úti í samfélaginu.

Þótt stefnumótun fram að Sósíalistaþingi í haust einskorðist við þessi fjögur málefni mun Sósíalistaflokkurinn efna til umræðu um mun fleiri viðfangsefni bæði í aðdraganda og kjölfari þingsins.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram