Verkafólk og talsfólk fátækra fremst á lista Sósíalistaflokksins

Gunnar Smári Egilsson Frétt

Framboðslistar Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík og Kópavogi hafa verið ákveðnir. Þeir samanstanda af baráttufólki fyrir hagsmunum láglaunafólks, leigjenda, öryrkja, lífeyrisþega, fátækra og annar hópa sem haldið hefur verið frá völdum. Helsta erindi framboðs sósíalista er krafa um að hin verr settu fái komist til valda, að Reykjavík og Kópavogur byggi húsnæði þar til húsnæðiskreppan er leyst og sveitarfélögin greiði starfsfólki sínu mannsæmandi laun.

Listi Sósíalistaflokks Íslands í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík er þessi:

  1. Sanna Magdalena Mörtudóttir, námsmaður og málsvari fátækra barna
  2. Daníel Örn Arnarsson, verkamaður og stjórnarmaður í Eflingu stéttarfélagi
  3. Anna Maria Wojtynska lausamanneskja
  4. Hlynur Már Vilhjálmsson, í starfsendurhæfingu og stofnandi Fósturheimilisbarna
  5. Ásta Þórdís Guðjónsdóttir, samhæfingarstjóri Pepp á Íslandi, samtaka fólks í fátækt
  6. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags
  7. Reinhold Richter, aðaltrúnaðarmaður í ISAL
  8. Klaudia Janina Migdal kennari
  9. Laufey Líndal Ólafsdóttir námsmaður
  10. Natalie Gunnarsdóttir plötusnúður
  11. Styrmir Guðlaugsson öryrki
  12. Kristbjörg Eva Andersen Ramos námsmaður
  13. Erna Hlín Einarsdóttir þjónustufulltrúi
  14. Hólmsteinn A. Brekkan, blikkari og framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda
  15. Elsa Björk Harðardóttir, öryrki
  16. Jón Kristinn Cortez, tónlistarkennari og eftirlaunamaður
  17. Ella Esther Routley, dagmamma
  18. Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir verkakona
  19. Þórður Alli Aðalbjörnsson, í starfsendurhæfingu
  20. Ósk Dagsdóttir kennari
  21. Herianty Novita Seiler öryrki
  22. Reynir Jónasson, hljóðfæraleikari og eftirlaunamaður
  23. Friðrik Boði Ólafsson, tölvufræðingur og stjórnarmaður í VR
  24. Guðrún Elísabet Bentsdóttir, öryrki
  25. Ynda Gestsson lausamanneskja
  26. Kurt Alan Van Meter hugbúnaðargæðastjóri
  27. Anna Eðvarðsdóttir næturvörður
  28. Luciano Dutra þýðandi
  29. Leifur A. Benediktsson verslunarmaður
  30. Ævar Þór Magnússon lyftaramaður
  31. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir eftirlaunakona
  32. Ellen Kristjánsdóttir söngkona
  33. Kristján Hafsteinsson strætóbílstjóri
  34. Auður Traustadóttir, sjúkraliði og öryrki
  35. Elísabet María Ástvaldsdóttir leikskólakennari
  36. María Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öryrki
  37. Sigrún Unnsteinsdóttir athafnakona
  38. Bogi Reynisson safnvörður
  39. Eggert Lárusson eftirlaunamaður
  40. Vilhelm G. Kristinsson, eftirlaunamaður og leiðsögumaður
  41. Hildur Oddsdóttir öryrki
  42. Sigríður Kolbrún Guðnadóttir sjúkraliði
  43. Magnús Bjarni Skaftason verkamaður
  44. Guðmundur Erlendsson, eftirlaunamaður og kokkur
  45. Benjamín Julian Plaggenborg stuðningsfulltrúi
  46. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur

Frá því listinn var kynntur hafa verið gerðar þær breytingar að Klaudia Janina Migdal kemur inn fyrir Magdalenu Kwiatkowska, sem taldist ekki kjörgeng þar sem hún hafði ekki dvalið samfellt á Íslandi í fimm ár. Þá skipi engu þótt Magdalena hafi búið hér samtals í vel á annan áratug. Þá þurfti Kremena Demireva að segja sig frá listanum af persónulegum ástæðum en Ellen Kristjánsdóttir söngkona hljóp í skarðið fyrir hana.

 

Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands í bæjarstjórnarkosningunum í Kópavogi er þessi:

  1. Arnþór Sigurðsson, kjötiðnaðarmaður, forritari og stjórnarmaður í VR
  2. María Pétursdóttir, myndlistarmaður, kennari og öryrki
  3. Rúnar Einarsson afgreiðslumaður
  4. Hildigunnur Þórsdóttir Saari námsmaður
  5. Alexey Matveev skólaliði
  6. Ásdís Helga Jóhannesdóttir íslenskukennari
  7. Eiríkur Aðalsteinsson afgreiðslumaður
  8. Edda Jóhannsdóttir, blaðamaður og öryrki
  9. Lucyna Dybka, vinnur við aðhlynningu á Landakotsspítala
  10. Elísabet Viðarsdóttir stuðningsfulltrúi
  11. Ágúst V. Jóhannesson matreiðslumaður
  12. Sólveig María Þorláksdóttir skrifstofumaður
  13. Helga Hólmfríðardóttir læknaritari og öryrki
  14. Ali Conteh aðstoðarkokkur
  15. Baldvin Björgvinsson, framhaldsskólakennari í rafiðnum
  16. Helga Guðmundsdóttir ritari
  17. Kolbrún Valvesdóttir verkakona
  18. Ída Valsdóttir afgreiðslukona
  19. Magnea Hildur Jónsdóttir stuðningsfulltrúi
  20. Össur Ingi Jónsson forritari
  21. Jón Baldursson, smiður og eftirlaunamaður
  22. Örn G. Ellingsen heimspekingur

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram