Krefjum ríkið um fjárframlag til sveitarfélaganna!

Frétt

30. mars 2020

Krefjum ríkið um fjárframlag til sveitarfélaganna!


Tillaga Sósíalistaflokks Íslands um að Reykjavíkurborg krefji ríkið um fjárfamlag til sveitarfélaganna, verður lögð fyrir á næsta borgarráðsfundi:

Reykjavíkurborg samþykkir að  krefja ríkisvaldið um fjárframlag til að mæta aukinni þjónustu vegna COVID-19 og fyrirsjáanlegs tekjufalls af sömu ástæðum. Ríkisvaldið hefur seðlaprentunarvald en sveitarfélögin ekki. Stór hluti aukinnar þjónustu við almenning, börn, fatlað fólk, eldri borgara og viðkvæma hópa, er á verksviði sveitarfélaganna. Með því að skilja sveitarfélögin út undan á sama tíma og fyrirtækjum er veitt ríkuleg aðstoð, horfir ríkisvaldið fram hjá mikilvægi sveitarfélaganna, ekki síst á tímum þar sem mestu skiptir að vernda einstaklinga, fjölskyldur og samfélag. Hér með samþykkir Reykjavíkurborg, stærsta sveitarfélagið, að vera leiðandi í því að krefja ríkið um aukið fjármagn til að sinna þjónustu á vegum sveitarfélaganna á tímum kórónaveirunnar.

Greinargerð:

Sveitarfélögin sinna gríðarlegri mikilvægri þjónustu í nærsamfélaginu líkt og skólaþjónustu, þjónustu við eldri borgara, fatlað fólk, börn og einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Kórónaveiran hefur víðtækar afleiðingar þar sem hún leggur mikið álag á þá þjónustu sem fyrir er og kallar á aukna þjónustu vegna einangrunar fólks, tekjumissis, kvíða og annarra fylgifiska ástandsins. Það er því mikilvægt að sveitarfélögin fái aukið fjármagn frá ríkinu til að sinna þjónustu sem er á vegum þeirra. Viðbragð hins opinbera gagnvart faraldrinum og efnahagslegum afleiðingum hans á ekki síst að vera innan nærsamfélagsins og þar með á vettvangi sveitarfélaganna.