Félagsfundur Júní 2025

Sæþór Benjamín Frétt

Eitt það allra mikilvægasta fyrir framtíð flokksins okkar er að byggja upp virkara og öflugra grasrótarstarf. Það gleður okkur því að bjóða ykkur velkomin til félagsfundar 21 júní næstkomandi þar sem verk stjórna verða kynnt nánar, verkefnin framundan rædd og félagar hafa tækifæri til að taka þátt og láta rödd sína heyrast. Þessi fundur markar upphaf nýs og reglubundins samtals milli forystu og félaga. Með mánaðarlegum félagsfundum viljum við efla lýðræðislegt starf flokksins, byggja traust og skapa vettvang þar sem við ræðum saman um pólitíkina, verkefnin og framtíðina.
📍 Bolholt 6
📅 Laugardaginn 21. júní
⏰ Fundurinn hefst kl. 12:00 – húsið opnar kl. 11:00
🥣 Hádegisverður verður í boði (Vinsamlegast merkið ykkur við sem mætingu svo við getum skipulagt magn matarins.)
Skráning hér: – https://sosialistaflokkurinn.is/skraningarform-prufa/
Facebook event hér: – https://fb.me/e/2IbUO5WLC
🔹 Á dagskrá:
*Uppfærsla frá framkvæmdastjórninni
*Uppfærsla frá málefnastjórninni
*Uppfærsla frá kosningastjórninni
*Kosning í lagabreytinganefnd
Nefndin verður skipuð 9 félögum og mun vinna að tillögum að breytingum á lögum flokksins fyrir næsta aðalfund.
Hver stjórn tilnefnir tvo fulltrúa og 3 sæti eru opin fyrir almenna félagsmenn – ef þú hefur áhuga, endilega hugleiddu að bjóða þig fram hér! sosialistaflokkurinn@sosialistaflokkurinn.is
Við vitum að breytingar í forystu kalla fram spurningar og væntingar. En við trúum á að opið samtal, gagnsæi og samvinna séu lykillinn að því að efla hreyfinguna okkar.

🎙️ Komdu, taktu þátt, spyrðu spurninga og vertu hluti af framtíð flokksins.
Aðgangur verður í boði í gegnum Zoom og einnig verður þýðing úr íslensku yfir á ensku og til baka ef þörf krefur.
Við hlökkum til að sjá þig!
Með baráttukveðju,
Stjórnir Sósíalistaflokksins

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram