Þjóð gegn þjóðarmorði – Stuðningsyfirlýsing
Ályktun
01.09.2025

Sósíalistaflokkur Íslands lýsir yfir eindregnum stuðningi við stórfundinn Þjóð gegn þjóðarmorði, sem haldinn verður laugardaginn 6. september í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri, Stykkishólmi og á Egilsstöðum.
Við stöndum saman með verkalýðshreyfingunni, mannúðarsamtökum og almenningi í þeirri skýru kröfu að íslensk stjórnvöld bregðist þegar í stað við yfirstandandi þjóðarmorði Ísraels í Palestínu.
Í nær tvö ár hefur heimsbyggðin horft upp á ólýsanlegar þjáningar palestínsku þjóðarinnar: tugþúsundir almennra borgara hafa verið drepnir, þar á meðal tugþúsundir barna, og milljónir standa frammi fyrir hungurdauða. Alþjóðadómstóllinn hefur staðfest að framganga Ísraels jafngildi þjóðarmorði og úrskurðað hernám þess á palestínsku landi ólöglegt. Þrátt fyrir þetta hafa vestræn ríki, þar á meðal Ísland, látið nægja innihaldslausar yfirlýsingar í stað þess að beita raunverulegum þrýstingi.
Við segjum: Nú er nóg komið.
Sósíalistaflokkur Íslands krefur ríkisstjórnina um að:
- Styðja málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael og viðurkenna að þjóðarmorð Ísraels gegn Palestínu sé staðreynd.
- Setja viðskiptabann á Ísrael og banna viðskipti við fyrirtæki sem hagnast á hernámi og aðskilnaðarstefnu.
- Beita sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gegn Ísrael og efla í staðinn viðskipti og samskipti við palestínsku þjóðina.
Þessar aðgerðir eru í fullu samræmi við alþjóðalög. Aðgerðarleysið til þessa gagnvart þjóðarmorði og hernámi Ísraels á palestínsku þjóðinni er áfellisdómur yfir íslenskum stjórnvöldum.
Alþingi og ríkisstjórn Íslands starfa í umboði þjóðarinnar. Þeim ber skylda til að endurspegla vilja hennar, verja alþjóðalög og beita sér af fullum þunga fyrir því að Ísrael láti þegar í stað af þjóðarmorði, virði rétt Palestínumanna til lífs, lands og frelsis.
Við hvetjum allt okkar fólk til að fjölmenna á mótmælafundina 6. september og sýna þar ótvíræða samstöðu með palestínsku þjóðinni.
Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn, tími aðgerða er runninn upp.
Sósíalistaflokkur Íslands
P.S
Viðburðir mótmælanna á Fésbókinni:
Reykjavík: Þjóð gegn þjóðarmorði – Reykjavík | Facebook
Egilsstöðum: Þjóð gegn þjóðarmorði – Egilsstaðir | Facebook
Ísafirði: Þjóð gegn þjóðarmorði – Ísafjörður | Facebook
Akureyri: Þjóð gegn þjóðarmorði – Akureyri | Facebook
Stykkishólmi: Þjóð gegn þjóðarmorði – Stykkishólmur | Facebook