Er ekki kominn tími á að rýna í skattkerfið? Við viljum t.d. skattleggja fjármagnstekjur eins og aðrar tekjur. Er skattbyrgði almennings að aukast? Hvað með allt hitt?
Dr Stefán Ólafsson, sem sinnir rannsóknum hjá Eflingu og fyrrverandi háskólaprófessor í félagsfræði, kemur og flytur erindi.
Umræður á eftir. Öll velkomin.
Húsið opnar kl. 19:30
Zoom verður í boði - fylgið þessum hlekk:
https://us06web.zoom.us/j/89604815533?pwd=LagFFttTLix6Ji1vYspUuI4q1sHi7Z.1
Heitt á könnunni hjá sósíalistum
Já, það er heitt á könnunni alla sunnudaga á Hverfisgötu 105 Reykjavík. Um að gera fyrir kaffiþyrsta og aðra að koma og spjalla um málefni líðandi stundar smakka kexið og vinna að því að bæta samfélag okkar með uppbyggilegum samræðum.
Staðsetning: Hverfisgötu 105. Reykjavík. (Á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar)
Tími: alla sunnudaga frá klukkan 10:00 til klukkan 12:00
Efni: það sem efst er á baugi í samfélaginu, nýjustu vendingar í pólitík og annað áhugavert
sem dæmi:
Verðlag á matvöru, húsnæðismál, skattaumhverfið, umhverfismál, kapítalisma, sósíalisma, borgar- og sveitarstjórnar mál, friðarhreyfingar, átök í heiminum, NATÓ, ESB, AL, mennta og skólamál og svo allt annað sem kaffiþyrstir vilja ræða.
Við æfum okkur í samtölum, framkomu og að tala við fólk um stjórnmál og stefnu flokksins. Annan hvern sunnudag kl. 13!
Allir velkomnir. Gerum þetta best saman.