Sósíalistaflokkurinn

Opið hús

Fyrir 2 klukkustundum kl. 11

Komið og heimsækið okkur á Hverfisgötu 105. Frambjóðendur verða á staðnum til að að hittast og svara spurningum. Nóg af kaffi og bakkelsi verður í boði og gott spjall. Sjáumst þar!

Í gangi
Facebook

Sunnudagspil Sósíalista

Eftir 50 mínútur kl. 13:30

Næstu fjóra sunnudaga býður Sósíalistaflokkur Íslands til skemmtilegra samverustunda í húsakynnum flokksins — sunnudagur sem sameina félagshyggjuvist og borðspil í anda samhjálpar, leikgleði og samvinnu. 🃏 Fyrri hluti dagsins: Félagshyggjuvist Við byrjum á spilavist þar sem keppt er um sæti á vinsemdarlegan hátt. Á hverju sunnudagsspili verða veitt verðlaun fyrir tvo efstu, tvo neðstu og sérstök setuverðlaun. Að loknum fjórum sunnudögum verða einnig veitt heildarverðlaun fyrir þá sem eru stigahæstir í heildina. 🎲 Seinni hluti: Borðspilahittingur Að spilavist lokinni verður boðið upp á léttan borðspilahitting. Ýmis borðspil verða í boði og allir sem vilja spila eitthvað sérstakt spil sem þeir eiga sjálfir, mega gjarnan taka það með sér. 💸 Aðgangur: Ókeypis — en framlög í pappírsjóðinn eru afar vel þegin. 📅 Tími: 13:30-17:30 📍 Staður: Hverfisgata 105 Komdu og njóttu notalegrar stundar í félagsskap framsækins fólks!

Framundan
Facebook

Stefnan okkar

Sósíalistaflokkurinn stendur fyrir grundvallarbreytingum á samfélaginu í þágu almennings.

Vertu með í baráttunni

Sósíalistaflokkurinn tekur við öllum sem deila sýn okkar um réttlátara samfélag.

Styrkja flokkinn

Reikningsnúmer: 0133-26-4660
Kennitala: 560914-0240