Sósíalistaflokkurinn

Sósíalískir sunnudagar

Eftir 6 daga kl. 10

Heitt á könnunni hjá sósíalistum Já, það er heitt á könnunni alla sunnudaga á Hverfisgötu 105 Reykjavík. Um að gera fyrir kaffiþyrsta og aðra að koma og spjalla um málefni líðandi stundar smakka kexið og vinna að því að bæta samfélag okkar með uppbyggilegum samræðum. Staðsetning: Hverfisgötu 105. Reykjavík. (Á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar) Tími: alla sunnudaga frá klukkan 10:00 til klukkan 12:00 Efni: það sem efst er á baugi í samfélaginu, nýjustu vendingar í pólitík og annað áhugavert sem dæmi: Verðlag á matvöru, húsnæðismál, skattaumhverfið, umhverfismál, kapítalisma, sósíalisma, borgar- og sveitarstjórnar mál, friðarhreyfingar, átök í heiminum, NATÓ, ESB, AL, mennta og skólamál og svo allt annað sem kaffiþyrstir vilja ræða.

Framundan
Facebook

Opið Hús

Eftir 6 daga kl. 10

Komið og heimsækið okkur á Hverfisgötu 105. Frambjóðendur verða á staðnum til að að hittast og svara spurningum. Nóg af kaffi og bakkelsi verður í boði og gott spjall. Sjáumst þar! Félagsfundurinn hefst á eftir klukkan 13:00 þar sem kynntar verða uppfærslur á kosningabaráttunni.

Framundan
Facebook

Félagsfundur Mars 2026

Eftir 6 daga kl. 13

Boðað er til félagsfundar Sósíalistaflokks Íslands 29. mars á Hverfisgötu 105. Opið hús hefst klukkan 10, með bakkelsi og spjalli - https://fb.me/e/6HYR52rAn og félagsfundurinn hefst stundvíslega klukkan 13:00. Boðið er upp á að taka þátt í gegnum Zoom að vanda og mun það einnig opna klukkan 12:30 svo tími gefist til að staðfesta skráningu í félagatal. Á Zoom þarf að koma fram undir fullu nafni og helst í mynd. Mikilvægt er að vera stundvís af virðingu við aðra fundargesti. Félagsfólki gefst tækifæri á að spyrja spurninga og eiga umræður. Dagskrá er eftirfarandi: 1. Kosningaráð segir frá starfinu. 2. ROÐI segir frá starfinu 3. Frambjóðendur segir frá starfinu 4. Önnur mál Léttar veitingar verða í boði og öll framlög vel þegin. Félagsfundir eru frábært tækifæri til að kynnast starfinu betur og til að taka þátt. https://us06web.zoom.us/j/81143065757?pwd=2Ei9JfyZJ3yCwUNp3lrQbRKL8tCb2U.1 Fundur stendur í um eina og hálfa klukkustund.

Framundan
Facebook

Sunnudagspil Sósíalista

Eftir 6 daga kl. 13:30

Næstu fjóra sunnudaga býður Sósíalistaflokkur Íslands til skemmtilegra samverustunda í húsakynnum flokksins — sunnudagur sem sameina félagshyggjuvist og borðspil í anda samhjálpar, leikgleði og samvinnu. 🃏 Fyrri hluti dagsins: Félagshyggjuvist Við byrjum á spilavist þar sem keppt er um sæti á vinsemdarlegan hátt. Á hverju sunnudagsspili verða veitt verðlaun fyrir tvo efstu, tvo neðstu og sérstök setuverðlaun. Að loknum fjórum sunnudögum verða einnig veitt heildarverðlaun fyrir þá sem eru stigahæstir í heildina. 🎲 Seinni hluti: Borðspilahittingur Að spilavist lokinni verður boðið upp á léttan borðspilahitting. Ýmis borðspil verða í boði og allir sem vilja spila eitthvað sérstakt spil sem þeir eiga sjálfir, mega gjarnan taka það með sér. 💸 Aðgangur: Ókeypis — en framlög í pappírsjóðinn eru afar vel þegin. 📅 Tími: 13:30-17:30 📍 Staður: Hverfisgata 105 Komdu og njóttu notalegrar stundar í félagsskap framsækins fólks!

Framundan
Facebook

Stefnan okkar

Sósíalistaflokkurinn stendur fyrir grundvallarbreytingum á samfélaginu í þágu almennings.

Vertu með í baráttunni

Sósíalistaflokkurinn tekur við öllum sem deila sýn okkar um réttlátara samfélag.

Styrkja flokkinn

Reikningsnúmer: 0133-26-4660
Kennitala: 560914-0240