Frétt

9. desember 2020

Félagsfundur: Dómsmál og ríkisfjármál


Félagsfundur Sósíalistaflokks Íslands verður haldinn 12. desember kl. 11:00 á zoom. Verkefni fundarins er samþykkt stefnu flokksins í ríkisfjármálum og dómsmálum, sem slembivaldir hópar félaga hafa sett saman. Fyrir fundinn verður félögum í flokknum sendar stefnurnar og myndbönd með kynningu á þeim, auk þess sem þetta efni verður kynnt á vef flokksins og síðu hans á Facebook. Gert er ráð fyrir að fundarmenn hafi kynnt sér þetta efni fyrir fundinn.

Dagskrá: 11:00 Stefna í ríkisfjármálum 11:30 Stefna í dómsmálum

Fundurinn fer fram á zoom. Númer fundarins er:5751158534

Hér má lesa frumvarp að stefnu í ríkisfjármálum:Frumvarp að stefnu í ríkisfjármálum

Hér má lesa frumvarp að stefnu í dómsmálum:Frumvarp að stefnu í dómsmálum