Frétt

12. júní 2020

Lófaklapp hækkar ekki launin!


Enn erum við í þeirri stöðu aðkvennastéttberst fyrir sanngjörnum launum.Það má spyrja hvað felst í sanngjörnum launum. Á að miða við menntun? Vinnuálag? Ábyrgð? Skorti á fólki í tiltekna stétt? Hjúkrunarfræðingar uppfylla svo sannarlega öll þessi atriði án þess að viðsemjendur þeirra virði þau. Það má jafnvel spyrja hvort skortur á starfandi hjúkrunarfræðingum verði ekki leiðréttur með eðlilegum launasamningum.Við höfum aldeilis fengið að finna fyrir því á þessu misseri hversu mikilvæg stétt hjúkrunarfræðinga er samfélagi okkar. Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslum og spítölum eru yfirlýstar hetjur; það er klappað fyrir þeim og jafnvel kveikt á kertum fyrir þá. Hins vegar er ekki hægt að borga þeim laun í samræmi við það.Nei, rétt eins og flugfreyjur/liðar hlýtur stéttin að vera uppbyggð af tilætlunarsömum frekjum, konum, sem átta sig ekki á því hvernig landið liggur, hvar valdið liggur. Það eru ekki til peningar til að borga meira, ekki til hjúkrunarfræðinga. Þið eruð bara hetjurnar okkar, ekki forstjórar!Ef þú velur þér starf eins og hjúkrun áttu að gera þér grein fyrir því að þú færð aldrei mannsæmandi laun, þú færð aldrei sanngjörn laun. Þú valdir þér þetta! Fólk sem velur að fara í hjúkrunarfræði gerir það af hugsjón, rétt eins og þeir sem velja að læra kennarann eða sjúkraliðann. Fólk vill hafa áhrif í sínu samfélagi til góðs. En að það fái borgað í samræmi við það er talin alger firra.Það er lágmark að hjúkrunarfræðingar, sem og aðrar stéttir geti gengið með stolti til sinnar vinnu, borið höfuðið hátt og haft mat á borðinu heima hjá sér. Þá á hrein dagvinna að duga fyrir mannsæmandi launum. Það að vinna á kvöldin, næturnar og/eða um helgar á að vera val sem launað er aukalega, ekki nauðsyn. Hætt er við því að starfsfólk sem neyðist til þess brenni fljótt út.Nú á að fjölga plássum í hjúkrunarfræði í bæði HA og HÍ sem er vel en það skýtur skökku við að í miðri kjarabaráttu stéttarinnar á að leggja stórfé í það að mennta fleiri hjúkrunarfræðinga, en það er ekki hægt að hnika neinu til þegar kemur að því að halda þeim sem eru nú þegar til staðar ánægðum í sínu starfi?Hjúkrunarfræðingar hafa fengið nóg, og við sem samfélag ættum að vera löngu búin að fá nóg. Ítrekað sjáum við sömu baráttuna hundsaða af valdhöfum með sömu aumkunarverðu afsökununum. Við krefjumst þess að hjúkrunarfræðingum séu greidd mannsæmandi og réttlát laun fyrir alla þá ábyrgð sem hvílir á þeim. Við,undirrituð, erum sósíalískir femínistar og lýsum yfir fullum stuðningi við baráttu hjúkrunarfræðinga.Það eru til peningar fyrir hjúkrunarfræðinga!Alda Lóa LeifsdóttirAndri SigurðssonArna Þórdís ÁrnadóttirArndís JónasdóttirÁsa KolbrúnÁsa Lind FinnbogadóttirBára Jóhannesdóttir GuðrúnardóttirBogi ReynissonCandice Michelle GoddardDavíð HusbyElísabet EinarsdóttirElísabet Ýr AtladóttirElva Dögg BlumensteinErna HlínHalldóra Jóhanna HafsteinsdóttirÂûJóna Guðbjörg TorfadóttirKatrín BaldursdóttirLaufey ÓlafsdóttirMargrét Rósa SigurðardóttirMaría PétursdóttirRagna Björg BjörnsdóttirSigurlaug Lára IngimundardóttirStefnir BenediktssonUnnur Rán ReynisdóttirValkyrja Helga Stefáns GuðrúnardóttirYnda Eldborg.