
Tilkynning
16. janúar 2021Tillaga borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um hagsmunasjóð leigjenda
Borgarstjórn Reykjavíkur19. janúar 2021Lagt er til að hluti leigunnar sem leigjendur Félagsbústaða greiða fari til hagsmunasamtakaleigjendanna. Fram hefur komið að erfitt getur verið fyrir leigjendur að ná sínum málum í gegn og upplifun þeirra sé sú að ekki sé alltaf hlustað á þá. Sem dæmi má nefna að viðhaldsmálum er ekki sinnt sem skyldi. Því er lagt til að 0,7% af mánaðarlegum leigugreiðslum leigjenda hjá Félagsbústöðum fari til hagsmunasamtaka leigjenda hjá Félagsbústöðum. Þannig má auðvelda hagsmunasamtökunum að halda utan um samskipti og skipulag þeirra krafna sem þarf að koma á framfæri til Félagsbústaða.Fyrirkomulagið svipar til þess sem á sér stað á vinnumarkaði þar sem hluti af launum launafólks fer til greiðslu stéttarfélagsgjalda. Erfitt getur verið fyrir leigjanda einn og sér að koma málum sínum á framfæri en slíkt er auðveldara í félagi. Með því að gera leigjendum kleift að koma sinni rödd á framfæri er einnig verið að tryggja hag Félagsbústaða til lengri tíma. Þar sem Félagsbústaðir gera ráð fyrir umræddum tekjum, er lagt til að Reykjavíkurborg bæti Félagsbústöðum upp tapið og að það verði tekið af liðnum ófyrirséð.Á vinnumarkaði fer hluti af launum launafólks til stéttarfélaga sem sinnir ákveðinni þjónustu.Félagið gætir þar m.a. að félagslegum réttindum og aðstoðar vegna ágreinings. Skipulagiðhefur gengið vel þar sem hagsmunir hópa eru varðir í gegnum slík félög. Lagt er til að svipaðfyrirkomulag verði tryggt fyrir hagsmunasamtök leigjenda hjá Félagsbústöðum svo að eflamegi þau úrræði sem leigjendum standi til boða. Einstaklingar sem hafa sömu hagsmuni aðgæta eru sterkari saman og sérstaklega þegar um aflsmun er að ræða á milli einstaklings meðlágar tekjur og jafnvel í viðkvæmri félagslegri stöðu, á móti leigufélagi.Blokkin, félag leigjenda hjá Félagsbústöðum var stofnuð með það að leiðarljósi að vekjaathygli á aðstæðum og upplifunum þeirra sem leigja hjá Félagsbústöðum hf. Aðilar á biðlistaeftir félagslegri leiguíbúð hjá borginni eru einnig velkomnir í félagið. Þetta er mikilvægurvettvangur sem fær inn á sitt borð ýmis viðkvæm mál og mikilvægt er að styrkja félagið til aðauka hag leigjenda hjá Félagsbústöðum. Til að ná að sinna því starfi sem felst í því að ná tilleigjenda, halda uppi umræðuvettvangi og sinna hagsmunagæslu þurfa öll félög á fjárstuðningi á að halda. Því er lagt til að þessu verklagi verði komið á varðandi leigjendur hjáFélagsbústöðum.