Að lögum verði breytt svo hægt sé að stofna nýjan húsnæðissjóð almennings. Slíkur íbúðasjóður byggir og leigir óhagnaðardrifið húsnæði til félagslega og samvinnufélagslega rekinna leigufélaga almennings svo sem leigufélaga sveitarfélaga, námsmannafélaga, félaga fatlaðs fólks, aldraðra, einstæðra foreldra eða hvers kyns almannasamtaka.