Listi Sósíalista í Norðausturkjördæmi

Ritstjórn Frétt

„Það er kominn tími á róttæka vinstristefnu sem hefur skýra framtíðarsýn og hafnar stöðugum málamiðlunum til hægri. Málamiðlanirnar hafa engu skilað nema afturför, síauknum ójöfnuði og auðsöfnun lítils hluta þjóðarinnar. Skattahækkanir á bótaþega og almennt launafólk, sligandi húsnæðis- og leigumarkaður og níðþungur fjármagnskostnaður og fjármálakerfi leggja þungar byrðar á þjóðina en soga hins vegar gríðarlegan arð til fjármagnseigenda og stórfyrirtækja,“ segir Haraldur Ingi Haraldsson sem skipar efsta sæti Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi.

Listanum er stillt upp af slembivöldum hópi meðal félaga flokksins sem unnið hefur hörðum höndum að því að endurspegla sem skýrast vilja grasrótar flokksins og teljum við það skila mun betri árangri en hefðbundnar leiðir við uppröðun á lista sem oftar en ekki gefa skakka mynd.

Haraldur Ingi varar við að fram undan sé grófari aðgerðir. „Í farvatni ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og þeirra flokka sem hann kallar til fylgis við sig eru stórkarlalegar fyrirætlanir um enn harðari hægri stefnu. Búið er að setja lög sem heimila stórfelldan einkarekstur í vegakerfinu með vegatollum. Fjársvelt heilbrigðiskerfi er eins og þroskaður ávöxtur reiðubúið að falla í körfu einkavæðingarinnar og bankarnir eru matreiddir fyrir aðra einkavæðingu og braskarar sleikja út um af tilhlökkun út af öllum arðgreiðslunum sem bíða handan við hornið.“

Sósíalistaflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem tekur skýra afstöðu gegn þessu efnahagskerfi,“ segir Haraldur Ingi. „Fyrir landið og Norðausturkjördæmi skiptir það sköpum að farið sé að leita félagslegra lausna á þeim vandamálum sem blasa við og að hafin sé uppbygging á forsendum almannahags ekki sérhagsmuna.“

„Ég vil breytingar á samfélaginu,“ segir Margrét Pétursdóttir verkakona sem skipar annað sæti listans. „Breytingar sem ég hélt að við fengjum eftir Búsáhaldabyltinguna en urðu ekki. Þar má telja nýja stjórnarskrá sem dæmi. Ég hef trú á þessu framboði Sósíalistaflokksins sem hefur fengið að gerjast í nokkur ár og ég tel að það sé farsælt fyrir okkur öll að teyma þetta þjóðfélag úr nýfrjálshyggjunni yfir í sósíalismann. Við verðum að lyfta upp þeim þjóðfélagshópum sem hafa liðið fyrir nýfrjálshyggju, eins og öll börn, öryrkja og aldraða. Það dugar ekkert miðjumoð í baráttunni við hatursfullt öfga kapítal.“

Guðrún Þórsdóttir sem er í þriðja sæti listans á sér ákveðið hugðarefni sem hún hefur brennandi áhuga og ástríðu fyrir því að bæta. „Það eru aðstæður ungmenna sem eru á einhvern hátt jaðarsett í samfélaginu og eiga við ýmsan íþyngjandi vanda að etja eins og fátækt, fíkn eða geðræn vandamál,“ segir Guðrún. „Það þarf að stórbæta aðstæður og möguleikar slíkra ungmenna til að fá bót meina sinna og hafa möguleika til að taka virkan þátt í samfélaginu og byggja sig upp.“

Samhliða listanum hafa Sósíalistar birt tilboð til kjósenda í Norðausturkjördæmi, sjá hér: BYGGJUM UPP BYGGÐIRNAR, INNVIÐI, HÚSNÆÐI OG SAMGÖNGUR

 

danielstarrason.com

Í fyrsta sæti er Haraldur Ingi Haraldsson, sem starfar sem verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ. Haraldur Ingi hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu, starfað sem kennari, leiðsögumaður, við kræklingarækt, við safnastörf og fleira. Haraldur Ingi hefur lagt stund á listir og sífellt sjálfsnám um vinstri sinnuð stjórnmál, sagnfræði og hagfræði. Niðurstaða þess náms fyrir honum er að félagslegt og efnahagslegt óréttlæti fer hraðvaxandi og ástæða þess er samfélagskerfi sem leggur fyrst og fremst áherslu á skyndigróða með sem minnstum tilkostnaði og sem minnsta ábyrgð og veitir ávinningnum að mestu leiti til eigenda stórfyrirtækja, hluthafa og stjórnenda og fjármagnseigenda. Þess vegna styður Haraldur Ingi sósíalisma sem hafnar núverandi skipulagi fjármálakapítalismans og setur í staðinn fram jákvæða og uppbyggjandi framtíðarsýn með lausnum fyrir fjöldann ekki þá fáu. Haraldur Ingi hefur tekið virkan þátt í félagsstarfi Sósíalistaflokksins og átt sæti í félagastjórn og situr nú í framkvæmdastjórn Flokksins.

Í öðru sæti er Margrét Pétursdóttir, utanskólamenntuð verkakona sem hefur unnið með börnum og gamalmennum og aldurshópum þar á milli. Margrét hefur unnið margvísleg sjálfboðaliðastörf og verið með fólki á verstu og bestu stundum lífsins og samsamað sig með flestum þeirra. Hún er róttækur aktivisti í umhverfismálum og félagi í náttúruverndarsamtökum og hefur starfað með þeim í aktivisma. Margrét er sósíalískur femínisti og vakti athygli á Borgarafundi í Háskólabíó og þegar hún klæddi styttuna af Jóni Sigurðssyni í bleik peysuföt til að beina spjótum að Neyðarstjórn kvenna sem starfaði í hruninu. Margrét aðhyllist húmanisma og vill að mannréttindastofnun verði sett á laggirnar sem fyrst af ríkisvaldinu.

Í þriðja sæti er Guðrún Þórsdóttir, menntuð í myndlist og menningarstjórnun. Hún hefur starfað við menningu og listir frá því hún var miðatakari í Kjallaraleikhúsinu 13 og 14 ára gömul. Fjölbreytt menningarlíf og listir eru henni hugleikin. Guðrún þekkir götur borgarinnar og var ein af ærslabelgjunum í miðbæ Reykjavíkur á áttunda áratugnum og þekkir götuslaginn vel. Síðustu ár hefur hún unnið með ungmennum á Akureyri með breiðan vanda, formgert samstarf 13 stofnanna sem öll hafa snertiflöt við jaðarsett ungmenni, ungmenni með fíknivanda, ungmenni með geðrænar áskoranir og ungmenni sem alist hafa upp í fátækt. Guðrúnu er hugleikið að hlúa að og undirbúa fólkið okkar sem er jú framtíðin.

Í fjórða sæti er Þorsteinn Bergsson, dýraeftirlitsmaður og sjálfstætt starfandi svæðisleiðsögumaður og þýðandi. Þorsteinn býr nú með fjölskyldu sinni á Egilsstöðum en var áður sauðfjárbóndi í Hjaltastaðaþinghá um árabil. Þorsteinn er vinstrimaður af öllu hjarta og eignarhald á landi og fyrirtækjum sem telja má til nauðsynlegra innviða er honum hugleikið. Hann telur brýnt að breyta sem fyrst samkeppnislögum og öðru regluverki sem hindrar opinberan rekstur. Ríki og sveitarfélög þurfa að grípa hraustlega inn í húsnæðismál og tryggja fólki aðgang að leiguhúsnæði á mannsæmandi kjörum. Fjármálakerfinu þarf að gera ljóst að það á að styðja við fjölskyldur og fyrirtæki í landinu en ekki sjúga úr þeim þróttinn.

www.danielstarrason.com

Í fimmta sæti er Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur, búsett á Ólafsfirði. Hún hefur starfað bæði sjálfstætt og sem launakona á íslenskum vinnumarkaði frá því um miðjan tíunda áratuginn. Pólitískar áherslur Unnar Maríu eru jöfnun tækifæra allra landsmanna hvað varðar aðgengi að menntun, menningu, heilsugæslu og flutningsleiðum. Hún hefur mikinn áhuga á friðar- og afvopnunarmálum og sat lengi í miðstjórn Samtaka hernaðarandstæðinga.

 

www.danielstarrason.com

Í sjötta sæti er Auður Traustadóttir heilsunuddari og sjúkraliði. Hún hefur verið meðlimur í Sósíalistaflokknum frá upphafi og starfað þar af krafti meðal annars í málefnahópum. Auður á þrjú börn og átta barnabörn. Hennar helstu pólitísku hugðarefni eru heilbrigðismál og bætt staða öryrkja og aldraðra.

 

www.danielstarrason.com

Í sjöunda sæti er Rúnar Freyr Júlíusson, póstberi og þjálfari sem stundar nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Rúnar hefur starfað með Sósíalistaflokknum frá því hann gekk í flokkinn í vor og situr nú í félagastjórn. Rúnar á ættir að rekja til Austfjarða og Eyjafjarðar en ólst að miklu leyti upp í Hrísey. Hann hefur starfað bæði í verslunum og sem iðnaðarmaður. Frá því að Rúnar var í barnaskóla hefur hann skipulagt mótmæli og safnanir fyrir málstaði sem honum er annt um. Rúnar hefur alla tíð verið vinstri maður inn að beini og varð að sönnum sósíalista eftir því sem hann stálpaðist. Sem ungum hinsegin einstaklingi er Rúnari sérstaklega annt um málefni hinsegin fólks og ungmenna, en hans helsta ástríða er fyrir lýðræði á vinnustöðum og stöðu brothættra byggða.

 

Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:

  1. Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri
  2. Margrét Pétursdóttir, verkakona
  3. Guðrún Þórsdóttir, menningarstjóri og ráðgjafi
  4. Þorsteinn Bergsson, dýraeftirlitsmaður og fyrrverandi bóndi
  5. Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur
  6. Auður Traustadóttir, sjúkraliði
  7. Rúnar Freyr Júlíusson, námsmaður
  8. Karolina Sigurðardóttir, verkakona
  9. Bergrún Andradóttir, námsmaður
  10. Brynja Siguróladóttir, öryrki
  11. Stefán L. Rögnvaldsson, bóndi og raunsæisskáld
  12. Kolbeinn Agnarsson, sjómaður
  13. Halldóra Hafdísardóttir, myndlistarmaður
  14. Arinbjörn Árnason, fv. bóndi og bifreiðarstjóri
  15. Ari Sigurjónsson, sjómaður
  16. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
  17. Michal Polacek, lögfræðingur
  18. Katrín María Ipaz, þjónn
  19. Skúli Skúlason, leiðbeinandi
  20. Jóhann Axelsson, prófesssor emeritus

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram