Frelsi Sósíalismans

Katrín Baldursdóttir Frétt

Frelsi er fá að blómsta sem manneskja og fá að rækta hæfileika sýna eða annað það sem hugurinn stendur til. Fólk sem er fátækt, svangt, heimilslaust og hefur ekki efni á að fara til læknis hvað þá sækja sér menntun hefur ekki frelsi samkvæmt hugmyndafræði Sósíalismans. Frjálshyggjumenn hafa hins vegar reynt að stela hugtakinu frelsi og gera það að sýnu, tala um einstaklingsfrelsi og frelsi markaðarins en út frá því sjónarhorni að enginn geri neitt nema að hann hafi frelsi til að græða á því sjálfur. Þeir eru undir áhrifum frá hagfræðingnum og heimspekingnum Adam Smith sem talaði um hina ósýnilegu hönd markaðarins sem skipulegði sig sjálfur og að menn lögðuðu sig hver að öðrum vegna ávinningsvonarinnar. Fræg er setning eftir hann sem er svona: „Það er ekki vegna góðvildar slátrarans, bruggarans eða bakarans, sem við væntum þess að fá málsverðinn okkar, heldur vegna þess að þeir hugsa um eigin hag.“

Sósíalisminn lítur öðruvísi á málin. Sósíalisminn segir að til þess að samfélagið geti verið frjálst og þroskast og þróast sem heild þurfi einstaklingurinn í samfélaginu að hafa frelsi til að þroskast og þróast. Þannig verði frelsi viljans raunverulegt-vald manns yfir sínum eigin hugsunum, gildismati og vali sem byggist ekki á mötun í gegnum fjölmiðla í eigu auðmanna, auglýsingar, auglýsingaherferðir kostaðar af atvinnurekendum og almannatengla í vinnu hjá auðvaldinu. Önnur hlið frelsisins í Sósíalismanum er að fá að gera það sem maður vill án þess að vera beittur þvingunum eða ofbeldi af öðrum og þannig hafa svigrúm til að geta valið.

Í hinu kapítalíska þjóðfélagi virðist fólk vera gráðugt, hugsa fyrst og fremt um eigin hag og vantreysta öðrum. Því er fullum fetum haldið fram að þessir eiginleikar séu eðli mannsins. Mennskan út frá sjónarhóli markaðarins snýst um neytendur og samkeppnisaðila. Í Sósíalismanum snýst mennskan um samvinnu og bræðralag. Sósíalistar segja að eðli mannsins standi ekki í veginum fyrir Sósíalisma. Sósíalismi sé í öllum manneskjum en bíði þess að slíkt þjóðskipulag komist á.

Frelsi til að blómsta fæst meðal annars með því að stytta vinnutímann. Sósíalistar leggja mikla áherslu á það. Það gæti hins vegar þýtt að mun minna yrði framleitt af allskonar hlutum. En sósíalistum finnst það enginn harmleikur. Fleiri hlutir stuðla ekki að vexti og þroska mannsins heldur í raun og veru þvert á móti. Þegar mannsæmandi kjör og nægilegur frítími hefur verið tryggður öðlast fólk frelsi til að velja það sem það hefur áhuga á. Færri iPone símar í skiptum fyrir meira frelsi og frítíma eru skipti sem hugnast sósíalistum.

Sósíalisminn segir ekkert frelsi falið í því fyrir launaþega að þurfa að afhenda kapítalistunum allan hagnaðinn sem myndast af vinnu þeirra. Atvinnurekendur hafa hins vegar frelsi til að gera það við hagnaðinn sem þeir vilja; eyða honum í neyslu, fjárfesta eða þess vegna brenna peningana. Í sósíalísku samfélagi fá allir hlut af hagnaðinum. Auðsöfnun á kostnað fjöldans er ekki inn í myndinni.

Lýðræði þýðir að almenningur hefur valdið en ekki einhver takmarkaður hópur manna, ekki þeir ríku eða þeir sem telja sig hæfari en aðrir til að fara með valdið. Sósíalisminn leggur mikla áherslu á frelsi almennings til að hafa raunveruleg áhrif á samfélagið í kringum sig, vinnustaðinn, verkalýðsfélagið, skólann, hverfið, sveitafélagið eða þorpið.

Þegar talað er um frelsi er oft talað um frelsi frá og frelsi til! Frelsi Sósíalsimans felst í –frelsi frá– fátækt, vinnuþrælkun, virðingarleysi, niðurlægingu, kúgun, ofbeldi, stöðugri mötun gegnum fjölmiðla og auglýsingar, sífelldri körfu um aukin afköst, valdbeitingu, hótunum um atvinnumissi, óttanum um efnalegt óöryggi, arðráni og auðsöfnun fárra og svo mætti lengi telja.

Og frelsi Sósíalismans felst í –frelsi til– mannsæmandi launa, frítíma, frelsi til að blómstra sem manneskja, að eiga tíma með börnum og fjölskyldu, að eiga tíma með vinum, að stunda áhugamál, frelsi til sköpunar í listum og menningu, til nýsköpunar í atvinnulífinu, frelsi til að deila með öðrum afrakstrinum af auðlindunum, að eiga hlut í virðisaukanum af vinnunni, að eiga gott húsnæði, að eiga nóg að borða, að eiga utan á sig föt, frelsi til ókeypis menntunar , ókeypis læknisþjónustu, til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt, að segja sínar skoðanir, hafa sjálfstæðan vilja o.s.frv.

Það er ekki úr vegi að enda þennan pistil um frelsið á því sem Einar Olgeisson, formaður Sósíalistaflokksins eldri, segir í inngangi Kommúnistaávarpsins um heimspekinginn Rousseau sem var upp á 18. öld og hafði mikil áhrif á forsprakka frönsku byltingarinnar 1789. Einar segir að Rousseau hafi verið: … málsvari miljóna, sem annars áttu enga að, verjandi smælingja, sem traðkaðir voru undir fótum höfðingjanna, frömuður frelsis, sem herskarar hinna kúguðu þráðu, talsmaður sannleika, sem auðmenn og aðall hæddi, boðberi ástar, sem hræsni og ljettúð misþyrmdu, söngvari náttúrunnar, er menningin afskræmdi og eyðilagði, skáld tilfinninga, sem vaninn og formið fjötruðu …

Katrín Baldursdóttir

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram