Lög
1. gr.
Heiti og heimilisfang.
Stjórnmálasamtökin heita Sósíalistaflokkur Íslands. Sósíalistaflokkur Íslands starfar samkvæmt lögum nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálasamtaka. Heimilisfang Sósíalistaflokks Íslands og aðalstarfsstöð er Bolholt 6, 105 Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur samtakanna.
Tilgangur Sósíalistaflokks Íslands er að starfrækja sósíalísk stjórnmálasamtök sem vinna að því að almenningur nái yfirráðum yfir öllum meginstofnunum samfélagsins, að bæta lífskjör launafólks og lífeyrisþega, að efla frelsi, jöfnuð, jafnrétti, friðhelgi og samkennd í samfélaginu og að rækja ábyrgð gagnvart vistkerfium og auðlindum jarðar sem falla í skaut komandi kynslóða. Tilgangi þessu nær Sósíalistaflokkur Íslands meðal annars með því að bjóða fram í kosningum, jafnt til Alþingis sem og sveitarstjórnarkosningum. Tilgangi sínum hyggst Sósíalistaflokkur Íslands einnig ná með því að efla sósíalíska vitund og umræðu, starfa með undirokuðum hópum almennings og leita áhrifa innan stofnana samfélagsins eftir því sem kostur er.
3. gr.
Skipulag samtakanna.
Æðsta vald Sósíalistaflokks Íslands í mótun og framkvæmd pólitískrar stefnu er árlegt Sósíalistaþing sem nánar er kveðið á um í Skipulagi.
Félagi getur á hverjum tíma aðeins setið í einni kjörinni stjórn (Framkvæmdastjórn, Félagastjórn, Baráttustjórn, Stjórnarráði eða Málefnastjórn). Seta félaga í kjörinni stjórn útilokar viðkomandi ekki frá setu í slembivalinni stjórn (til að mynda Samvisku, Kjörnefnd eða Málefnahópum). Né heldur útilokar seta í einni slembivalinni nefnd setu í annarri slembivalinni nefnd. Þó skal nefndarmaður í Samvisku segja sig frá umfjöllun um ágreiningsmál sem viðkomandi er aðili að, og skal Samviskan ákveða hvort nauðsynlegt sé að viðkomandi víki alfarið úr nefndinni. Hver félagi skal ekki sitja sem aðalmaður og varamaður lengur en tólf ár í hverri stjórn og ekki gegna formennsku í hverri nefnd lengur en átta ár. Félagi sem er ekki kjörgengur í eina stjórn af þessum sökum er áfram kjörgengur í aðrar nefndir.
4.gr.
Aðild að samtökunum.
Öllum er velkomið að ganga til liðs við Sósíalistaflokk Íslands, óháð kyni, uppruna, trú eða kynhneigð, með fyrirvara um heimild Samvisku til brottvísunar úr flokknum sem nánar er kveðið á um í Skipulagi.
Félagar geta tilkynnt úrsögn úr flokknum með tölvupósti.
5. gr.
Stjórn flokksins. Framkvæmdastjórn skal skipuð 9 félögum kjörnum á Sósíalistaþingi, til árs í senn. Einnig skal kjósa 4 varamenn. Framkvæmdastjórn fer með málefni flokksins milli Sósíalistaþinga. Framkvæmdastjórn skiptir með sér verkum og skal velja úr sínum röðum formann, varaformann, ritara og gjaldkera. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta Framkvæmdastjórnar.
Framkvæmdastjórn ábyrgist daglegan rekstur flokksins, hefur umsjón með heimasíðu og kynningarmálum, sér um fjármál flokksins, heldur utan um félagaskrá og skal safna saman fundargerðum og öðrum heimildum um ákvarðanir og starfsemi flokksins milli Aðalfunda. Framkvæmdastjórn er heimilt að kalla eftir aðstoð félaga og annarra við úrlausn einstakra verkefna eftir þörfum.
Framkvæmdastjórn er ábyrg fyrir að starfsemi flokksins sé í samræmi við Lög og Skipulag og er heimilt að skera úr um ágreining um ákvarðanir annarra stofnana flokksins (sem lýst er í Skipulagi) í samræmi við Lög og Skipulag. Ætíð má skjóta ákvörðunum Framkvæmdastjórnar til Samvisku svo sem kveðið er á um í Skipulagi.
6. gr.
Endurskoðun reikninga.
Framkvæmdastjórn velur endurskoðanda og/eða endurskoðunarfélag til eins árs í senn.
7.gr.
Breyting á samþykktum.
Starfstímabil Sósíalistaflokks Íslands er almanaksárið. Á aðalfundi, sem haldinn er árlega á Sósíalistaþingi, skal gera upp árangur liðins árs.
Sósíalistaþingi er heimilt að efna til auka aðalfundar samkvæmt ákvæðum í Skipulagi og hefur hann sama vald og aðalfundur. Aðalfundur skal haldinn ár hvert og skal boðað til hans með minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað.
Aðeins félagar hafa þátttökurétt í störfum Sósíalistaþings. Einfaldur meirihluti viðstaddra félaga ræður úrslitum mála.
Dagskrá Sósíalistaþings skal vera sem hér segir: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla Framkvæmdastjórnar lögð fram. 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar. 4. Lagabreytingar. 5. Ákvörðun félagsgjalds. 6. Kosning Framkvæmdastjórnar og annarra stjórna sem kveðið er á um í Skipulagi. 7. Önnur mál.
8. gr.
Slit samtakanna. Ákvörðun um slit eða niðurlagningu Sósíalistaflokk Íslands skal tekin af tveimur aðalfundum og skal einfaldur meirihluti ráða. Seinni aðalfundurinn ráðstafar eignum flokksins.
9.gr.
Þar sem ákvæði þessa samþykkta segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 162/2006 um starfsemi stjórnmálsamtaka svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.