Stefna Sósíalistaflokks Íslands í sveitastjórnarmál
Frétt
01.05.2018
Stefna Sósíalistaflokks Íslands er:
- að tryggja að grunnþörfum allra íbúa sveitarfélaga sé mætt, almenn velferð verði að veruleiki fyrir alla, að allir lifi með reisn og önnur mannréttindi séu virt í takt við fremstu ákvæði íslenskra laga og alþjóðlegra skuldbindinga. Sérstaklega sé öryggi barna tryggt og að ákvarðanir séu teknar í samræmi við velferð þeirra.
- að sveitarfélög vinni í þágu einstaklinga og fjölskyldna og hlúi sérstaklega að velferð þeirra sem eru í veikri aðstöðu og hafa færri úrræði í lífinu eins og öryrkja, eldra fólks, innflytjenda og láglaunafólks.
- að yngstu börnum séu búnar aðstæður til þess að þroskast og dafna með fjölskyldu sinni og síðar með jafnöldrum og félögum.
- að börnum og ungmennum sé tryggð menntun við hæfi og tryggt sé fjármagn til þess að skólinn og námsgögn nemenda séu gjaldfrjáls . Framfylgja þarf ítrustu kröfum um jafnrétti í skólastarfi, heilbrigði og velferð barna, læsi og sköpun – og kröfur um lýðræði og mannréttindi þeirra séu virtar til fulls.
- að sveitarfélög útbúi raunhæf framfærsluviðmið fyrir þá sem þurfa framfærslu og stuðning frá sveitafélögum þannig að einstaklingum og fjölskyldum séu tryggð örugg framfærsla.
- að setja þarfir og rödd notenda félagsþjónustu í fyrsta sæti og auka aðgengilega velferðarþjónustu.
- að allir eigi rétt á góðu húsnæði. Sveitarfélögunum verði skylt að mæta þörfum íbúa fyrir félagslegt húsnæði. Félagslega rekin leigufélög og einstaklingar gangi fyrir í úthlutun lóða og sveitarfélögin styðji íbúðauppbyggingu á félagslegum forsendum, búsetumöguleikar innan sveitarfélaga séu auknir og settar verði strangar reglur um starfsemi leigufélaga og þak á leiguverð.
- að allir eigi rödd sem skiptir máli í samfélaginu, að efla íbúa sveitarfélaga til þess að hafa meiri áhrif og bjóða upp á samráðshópa sveitarstjórna með slembivöldum einstaklingum. Sérstaklega verði hugað að sjálfræði íbúa í hverfum stórra sveitarfélaga.
- að sveitarfélög hverfi frá láglaunastefnu sinni og útrými henni alveg og verði leiðandi fyrirmynd á vinnumarkaði hvað varðar laun, vinnutíma og önnur kjör starfsfólks.
- að tryggja réttindi íbúa til heilsusamlegs umhverfis og efla umhverfisvitund.
- að samgöngur miði að því að þjóna íbúum sveitarfélaga og ekki síst þeim tekjulægri. Horfið verði frá því eins og mögulegt er að höfuðborgarsvæðið og stærri sveitarfélög verði áfram bílaborgir. Nýjum hverfum fylgi góðar almenningssamgöngur, það er hluti af innviðum.
- að standa vörð um fyrirtæki í eigu sveitarfélaga; að fyrirtæki sem þjóna íbúum sveitarfélaganna verði ekki seld og auka aðhald og gengsæi í stjórnsýslu og rekstri fyrirtækja í eigu sveitarfélaga.
- að öll sveitarfélög taki sameiginlega ábyrgð í málefnum fólks í landinu og tryggi jöfnuð íbúa, sveitarfélaga og landshluta. Samvinna sveitarfélaga verði aukin og samræmi verði í gjaldtöku þeirra þannig að ekki myndist „skattaparadísir.“
- að sveitarfélögin geri átak í innleiðingu stjórnsýslulaga og upplýsingalaga í starfsemi sinni og auki gagnsæi starfa. Sveitar- og bæjarstjórar og borgarstjóri verði fagmenn en ekki pólitískir foringjar. Leitað verði leiða til þess að tryggja lýðræðislega aðkomu íbúa og eðlilega ábyrgðarkeðju og gagnsæi í starfi fyrirtækja í eigu margra sveitarfélaga; jafnvel með stofnun nýs stjórnsýslustigs.