Verkafólk og talsfólk fátækra fremst á lista Sósíalistaflokksins
Frétt
01.05.2018
Framboðslistar Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík og Kópavogi hafa verið ákveðnir. Þeir samanstanda af baráttufólki fyrir hagsmunum láglaunafólks, leigjenda, öryrkja, lífeyrisþega, fátækra og annar hópa sem haldið hefur verið frá völdum. Helsta erindi framboðs sósíalista er krafa um að hin verr settu fái komist til valda, að Reykjavík og Kópavogur byggi húsnæði þar til húsnæðiskreppan er leyst og sveitarfélögin greiði starfsfólki sínu mannsæmandi laun.
Listi Sósíalistaflokks Íslands í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík er þessi:
- Sanna Magdalena Mörtudóttir, námsmaður og málsvari fátækra barna
- Daníel Örn Arnarsson, verkamaður og stjórnarmaður í Eflingu stéttarfélagi
- Anna Maria Wojtynska lausamanneskja
- Hlynur Már Vilhjálmsson, í starfsendurhæfingu og stofnandi Fósturheimilisbarna
- Ásta Þórdís Guðjónsdóttir, samhæfingarstjóri Pepp á Íslandi, samtaka fólks í fátækt
- Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags
- Reinhold Richter, aðaltrúnaðarmaður í ISAL
- Klaudia Janina Migdal kennari
- Laufey Líndal Ólafsdóttir námsmaður
- Natalie Gunnarsdóttir plötusnúður
- Styrmir Guðlaugsson öryrki
- Kristbjörg Eva Andersen Ramos námsmaður
- Erna Hlín Einarsdóttir þjónustufulltrúi
- Hólmsteinn A. Brekkan, blikkari og framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda
- Elsa Björk Harðardóttir, öryrki
- Jón Kristinn Cortez, tónlistarkennari og eftirlaunamaður
- Ella Esther Routley, dagmamma
- Pálína Sjöfn Þórarinsdóttir verkakona
- Þórður Alli Aðalbjörnsson, í starfsendurhæfingu
- Ósk Dagsdóttir kennari
- Herianty Novita Seiler öryrki
- Reynir Jónasson, hljóðfæraleikari og eftirlaunamaður
- Friðrik Boði Ólafsson, tölvufræðingur og stjórnarmaður í VR
- Guðrún Elísabet Bentsdóttir, öryrki
- Ynda Gestsson lausamanneskja
- Kurt Alan Van Meter hugbúnaðargæðastjóri
- Anna Eðvarðsdóttir næturvörður
- Luciano Dutra þýðandi
- Leifur A. Benediktsson verslunarmaður
- Ævar Þór Magnússon lyftaramaður
- Ragnheiður Ásta Pétursdóttir eftirlaunakona
- Ellen Kristjánsdóttir söngkona
- Kristján Hafsteinsson strætóbílstjóri
- Auður Traustadóttir, sjúkraliði og öryrki
- Elísabet María Ástvaldsdóttir leikskólakennari
- María Gunnlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og öryrki
- Sigrún Unnsteinsdóttir athafnakona
- Bogi Reynisson safnvörður
- Eggert Lárusson eftirlaunamaður
- Vilhelm G. Kristinsson, eftirlaunamaður og leiðsögumaður
- Hildur Oddsdóttir öryrki
- Sigríður Kolbrún Guðnadóttir sjúkraliði
- Magnús Bjarni Skaftason verkamaður
- Guðmundur Erlendsson, eftirlaunamaður og kokkur
- Benjamín Julian Plaggenborg stuðningsfulltrúi
- Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur
Frá því listinn var kynntur hafa verið gerðar þær breytingar að Klaudia Janina Migdal kemur inn fyrir Magdalenu Kwiatkowska, sem taldist ekki kjörgeng þar sem hún hafði ekki dvalið samfellt á Íslandi í fimm ár. Þá skipi engu þótt Magdalena hafi búið hér samtals í vel á annan áratug. Þá þurfti Kremena Demireva að segja sig frá listanum af persónulegum ástæðum en Ellen Kristjánsdóttir söngkona hljóp í skarðið fyrir hana.
Framboðslisti Sósíalistaflokks Íslands í bæjarstjórnarkosningunum í Kópavogi er þessi:
- Arnþór Sigurðsson, kjötiðnaðarmaður, forritari og stjórnarmaður í VR
- María Pétursdóttir, myndlistarmaður, kennari og öryrki
- Rúnar Einarsson afgreiðslumaður
- Hildigunnur Þórsdóttir Saari námsmaður
- Alexey Matveev skólaliði
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir íslenskukennari
- Eiríkur Aðalsteinsson afgreiðslumaður
- Edda Jóhannsdóttir, blaðamaður og öryrki
- Lucyna Dybka, vinnur við aðhlynningu á Landakotsspítala
- Elísabet Viðarsdóttir stuðningsfulltrúi
- Ágúst V. Jóhannesson matreiðslumaður
- Sólveig María Þorláksdóttir skrifstofumaður
- Helga Hólmfríðardóttir læknaritari og öryrki
- Ali Conteh aðstoðarkokkur
- Baldvin Björgvinsson, framhaldsskólakennari í rafiðnum
- Helga Guðmundsdóttir ritari
- Kolbrún Valvesdóttir verkakona
- Ída Valsdóttir afgreiðslukona
- Magnea Hildur Jónsdóttir stuðningsfulltrúi
- Össur Ingi Jónsson forritari
- Jón Baldursson, smiður og eftirlaunamaður
- Örn G. Ellingsen heimspekingur