Hádegismótmæli nr. 1: Skilið peningunum

Ritstjórn Frétt

Boðað er til fyrstu hádegismótmælanna við hús Tryggingastofnunar kl. 12:10 föstudaginn 15. Febrúar.

Tryggingastofnun ríkisins skerti lífeyri hjá öryrkjum vegna búsetu utan Íslands í meira en tíu ár þrátt fyrir ábendingar um að það væri ólöglegt. Umboðsmaður Alþingis tók undir umkvartanir öryrkja og loks úrskurðaði velferðarráðuneytið að skerðingin hafi verið ólöglega og að Tryggingastofnun ætti að greiða fólkinu fullan lífeyri.

En ekkert hefur gerst. Þrátt fyrir að fólkið sem mátti þola skerðinguna sé meðal fátækasta fólki á landinu og hafa allra síst efni á að lána ríkissjóði peninga hefur ekkert af öryrkjunum fengið greitt það sem tekið var af þeim, ekki krónu.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram