Tillaga sósíalista um að laun borgar- og varaborgarfulltrúa taki ekki hækkunum
Frétt
16.04.2020

Sósíalistar lögðu fram tillögu á fundi borgarráðs í dag um að grunnlaun borgarfulltrúa og 1. varaborgarfulltrúa taki ekki hækkunum í takt við þróun launavísitölu líkt og þau hafa gert.
Grunnlaunin miða við þróun launavísitölu frá marsmánuði 2013 og uppfærast í janúar og júlí ár hvert. Á meðan að covid-19 faraldurinn gengur yfir og samfélagið tekst á við efnahagslegar afleiðingar þess er mikilvægt að hinir betur launuðu í ráðandi stéttum sýni ábyrgð í verki.
Fyrsta skrefið í þá átt er að tryggja að laun borgarfulltrúa taki ekki hækkunum á komandi mánuðum. Þá er mikilvægt að ef þessi ákvörðunin verði endurskoðuð síðar, að hún leiði ekki til afturvirkra launahækkanna.