Frítt fyrir börnin

Pistill

Af hverju þykir það eðlilegt að sum börn geti stundað allar þær tómstundir sem þau vilja en önnur ekki? Væri það ekki eðlilegt að við sem samfélag myndum líta svo á að öll börn gætu stundað allar þær tómstundir sem þau vilja?

Staðreyndin er sú að það eru mjög margir foreldrar sem standa frammi fyrir því að geta einungis leyft barninu sínu eina tómstund (ef það) með hjálp frístundastyrksins. Því miður veit ég líka um marga foreldra sem geta ekki einu sinni nýtt frístundastyrkinn í þetta því styrkinn þurfa þau að nota til að geta sent börnin sín á frístundaheimili eftir skóla. Svo eru sveitarfélög sem bjóða ekki einu sinni upp á frístundastyrk.

Alla foreldra dreymir um að geta leyft börnunum sínum að fara í tónlistarskóla, á myndlistar- og leiklistarnámskeið, íþróttir og allt sem hugur þeirra leitar til. Hinsvegar þarf ég, eins og mjög margir foreldrar,að velja.

Margar af tómstundunum hafa líka aukinn kostnað sem ætlast er til að foreldrar leggi út fyrir. Sums staðar þarf að kaupa dýra búninga, eða búnað sem þarf. Þar að auki þarf oft að borga gífurlegar fjárhæðir í keppnisgjöld því það eru jafnvel mót um hverja einustu helgi sem öll kosta eitthvað. Og í hvað fara þessar fjárhæðir? Fara þær inn í tómstundir barnanna okkar?

Íþróttafélögin eru mörg rekin á þeim hagnaði sem yngstu flokkarnir koma með inn í félagið. Mót, keppnir og allskonar fjáraflanir sem eru rekin á yngstu stigum fara beint í að halda uppi efstu flokkunum. Ég set stórt spurningarmerki við það. Ég myndi öllu heldur vilja að það yrði skoðað að verðlauna þá sem ná lengra á annan hátt en á kostnað þeirra sem yngri eru.

Ég óska þess að við hættum alfarið að líta á börn sem tekjulind. Börn eru augljóslega fólk án tekna og ættu því ekki að þurfa að borga fyrir neina þjónustu yfirhöfuð.

Frístundaheimili, tómstundir, íþróttir og fleira ætti allt að vera gjaldfrjálst. Alveg eins og læknaog tannlæknaþjónusta, sálfræðiþjónusta og önnur nauðsynleg grunnþjónusta. Börn eru tekjulaus, látum ekki laun foreldra þeirra standa í vegi fyrir að þau blómstri á allan þann hátt sem þau vilja.

Fyrir þau ykkar sem viljið nota þau rök að börn þurfi einhverntíman að læra að hlutir kosta skal ég fullvissa um að lærdómurinn er víða annars staðar. Í fríum með foreldrum, í húsnæði og bílakosti, í fatnaði, leikföngum og svo framvegis. Það er af nógu að taka. Leyfum börnum að vera börn.

Sósíalistaflokkur Íslands hefur á stefnuskrá sinni að börnum og ungmennum séu tryggðar gjaldfrjálsar tómstundir. Ég vil því hvetja alla sem eru sammála mér að kjósa x-J í alþingiskosningunum 25. september næstkomandi.

Höfundur er sósíalískur femínisti og vermir 4. sæti á J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram