Auðlind og auðvald

Árni Múli Jónasson Pistill

Í síðustu viku var sagt frá því fjölmiðlum að Kaupfélag Skagfirðinga hefði keypt meirihluta í stærstu útgerðinni í Ólafsvík á Snæfellsnesi og hafi þar með enn bætt við fiskveiðikvóta FISK Seafood, sem er í eigu kaupfélagsins og er nú þriðja stærsta útgerð landsins, miðað við kvótastöðu.

Í fréttum um þessi kaup í Morgunblaðinu og Stundinni er rætt við Kristin Jónsson, bæjarstjóra í Snæfellsbæ. Í viðtalið við Morgunblaðið sagði Kristin m.a.: „vissu­lega hræða spor sög­unn­ar,“ og bæjarstórinn sagði einnig: „Eitt sinn keypti KEA hér út­gerð og rækju­vinnslu, sem átti að efla. Fáum mánuðum síðar var kvót­inn far­inn og verk­smiðjunni lokað og borið við breytt­um for­send­um. Sög­ur lík­ar þess­ari eru marg­ar.“

Í frétt Morgunblaðsins um söluna segir einnig: „Stein­unn ehf. er eitt stærsta út­gerðarfyr­ir­tækið í Ólafs­vík og hef­ur skilað miklu til sam­fé­lags­ins. Svo verður áfram, skv. því sem sagt hef­ur verið, en Krist­inn seg­ist taka öllu með fyr­ir­vara og hefði kosið að heima­mönn­um hefði verið boðið að koma að kaup­un­um.“

Hér er bara enn eitt dæmið af mjög mörgum um þá nöturlegu staðreynd að útgerðarmenn, sem hafa fengið úthlutað frá ríkinu einkarétti til að nýta fiskveiðiauðlindina, sem öll íslenska þjóðin á, hafa líf og framtíð fólksins og heilu byggðarlaganna í hendi sér. Og þeir geta svipt fólkið sem þar býr lífsviðurværi sínu hvenær sem þeim þóknast og þeim hentar, með því að selja kvótann fyrirhafnarlaust hæstbjóðanda, oft fyrir marga milljarða og þurfa ekki að láta fólkið sem hefur unnið við að veiða fiskinn og vinna hann njóta nokkurs af þeim mikla ágóða með sér.

En það er ekki nóg með það.

Stórkostlegur auður, sem safnast á hendur eigenda og stjórnenda stórra útgerðarfyrirtækja, í krafti einkaréttar til að nýta fiskveiðiauðlindina sem við öll eigum saman, hefur gert þá gríðarlega valdamikla og valdhrokinn og virðingarleysið gagnvart þeim, sem fólkið sem á auðlindina, hefur treyst til að gæta hagsmuna sinna er mjög oft yfirgengilegt og gjörsamlega óþolandi.

Segja þessi orð bæjarstjórans í Snæfellsbæ í viðtalinu við Stundina ekki sitt um það?

„Þeir ætla sér að byggja hérna upp en mér þykir miður að hafa ekkert heyrt frá þeim þannig að ég veit ekki nákvæmlega hver áform þeirra eru, nema það sem stendur í fréttatilkynningunni.“

Með öðrum orðum. Fiskveiðiauðvaldið nennir ekki að ræða við sveitarstjórnarfólkið, sem íbúarnir hafa kosið með lýðræðislegum hætti. Þetta auðvald ber svo litla virðingu fyrir lýðræðislegu valdi að það nennir ekki einu sinni að þykjast bera virðingu fyrir því.

Þetta ofurvald stórfyrirtækja stendur byggðunum á Íslandi stórkostlega fyrir þrifum og er gríðarlega óréttlátt gagnvart íbúunum, óheilbrigt og ólíðandi.

Sósíalistaflokkur Íslands ætlar að losa fólk og samfélög úr þessu kyrkingartaki með því að ná valdinu frá stórfyrirtækjunum og færa það til fólksins.

Ef þú vilt leggja lið við það þjóðþrifaverk geturðu gert það með einföldum og mjög áhrifaríkum hætti:

Greiddu Sósíalistaflokknum atkvæði þitt í alþingiskosningunum 25. september.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram