„Það er auð­vitað aug­ljós­lega tals­vert flókið að eiga peninga á Ís­landi“

Árni Múli Jónasson Pistill

Mörgum eru minnisstæð orð núverandi formanns Framsóknarflokksins, Sigurðar Inga Jóhannssonar, Þegar flett hafði verið ofan af því að núverandi formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Bendediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, áttu peninga og félög í útlendum skattaskjólum.

Sigurður Ingi var spurður:

„Er eðlilegt að forsætisráðherrann og kona hans eigi stórar upphæðir á Tortola?“

Fullur samúðar svaraði Sigurður:

„Það er auðvitað augljóslega talsvert flókið að eiga peninga á Íslandi. Það er ekkert að því að fólk sé efnað á Íslandi.“

Hann var þá spurður:

„En að eiga peninga á Tortola?“

Hann svaraði skilningsríkur:

„Einhvers staðar verða peningarnir að vera.“

Í leiðara Kjarnans 9. ágúst sl. kemur fram að mánaðarlaun ráðherra á Íslandi hafi hækkað um 874 þúsund krónur síðan þetta viðtal var tekið við formann Framsóknarflokksins. Þar segir m.a.:

„Grunnlaun ráðherra hafa hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemmsumars 2016 en fá nú 2.131.788 krónur á mánuði. Laun þeirra hafa því hækkað um 874.363 krónur á tímabilinu, eða um 70 prósent.“

Á visir.is var fyrr í þessari viku frétt undir fyrirsögninni „Börn fatlaðs fólk verða af næringarríkum mat og tómstundum.“ Þar segir m.a.:

„Tæplega átta af hverjum tíu í flokki fatlaðs fólks eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman. Sex af hverjum tíu geta ekki mætt óvæntum útgjöldum. Þetta er meðal niðurstaðna spurningakönnunar Vörðu fyrir Öryrkjabandalag Íslands þar sem staða fatlaðs fólks á Íslandi var könnuð.“

Í fréttinni segir líka:

„Heildarniðurstaðan er sú að fjárhagsstaða fatlaðs fólks er mjög slæm. Tæplega fjórir af hverjum tíu búi við skort á efnislegum gæðum.“ … „Tæplega níu af hverjum tíu einhleypum og einstæðum foreldrum eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman. Um helmingur einstæðra fatlaðra foreldra og einhleypra býr við skort á efnislegum gæðum. Ríflega fjórir af hverjum tíu einstæðum foreldrum geta ekki veitt börnunum sínum eins næringarríkan mat og þeir vilja eða greitt kostnað vegna skipulagðra tómstunda.“ … „Ríflega átta af hverjum tíu hafa neitað sér um heilbrigðisþjónustu. Sex af hverjum tíu hafa neitað sér um tannlæknaþjónustu. Þrír af hverjum tíu hafa neitað sér um almenna heilbrigðisþjónustu. Tæplega níu af hverjum tíu segja að kostnaður sé helsta ástæða þess að þeir hafi neitað sér um heilbrigðisþjónustu.“

Getur þetta fátæka fólk kannski huggað sig það við að hafa aldrei þurft að takast á við þá erfiðleika, sem formaður Framsóknaflokksins hafði svo mikinn skilning á, hvað það er „flókið að eiga peninga á Íslandi“?

En ef þið eruð ekki sátt við það samfélag og siðleysi sem framangreint lýsir og þennan viðskilnað ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur getið þið látið álit ykkar í ljós með einföldum en mjög áhrifaríkum hætti:

Kjósið Sósíalistaflokkinn!

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram