Að halda reisn og sjálfstæði

Elínborg Steinunnardóttir Pistill

Í janúar 2020 varð ég fyrir hræðilegu slysi á leið heim úr vinnu. Bíll sem ekið var af próflausum ökumanni undir áhrifum vímuefna, eltum af lögreglunni, lenti framan á bíl sem ég var í á 150 km hraða. Bílstjóri hins bílsins var á öfugum vegarhelmingi og hafi stolið bíl í Hafnarfirði skömmu áður. Ég brotnaði á vinstri ökla, vinstri úlnlið, hægri framhandlegg, bringubeinið, einhver rif voru brotin og ég var illa brotin á hægri mjöðm. Þá féllu sköflungurinn og hnéð hægra megin saman. Ég fékk heilablóðfall fyrstu nóttina á gjörgæslunni og lamaðist ég vinstra megin. Ég er enn að jafna mig á heilablóðfallinu.

Langtímadvöl á sjúkrastofnunum

Eftir nokkrar vikur á spítala í Reykjavík var ég send á sjúkrahúsið í Keflavík. Þar tók við löng bið þar sem lítið var við að hafa áður en ég var send á Grensásdeildina í endurhæfingu. Ég dvaldi síðan á sjúkrastofnunum í meira eða minna heilt ár. Reykjanesbær þrjóskaðist við að veita mér þá notendastýrðu persónulegu aðstoð sem ég átti samkvæmt lögum rétt á vegna þess að fjármagn hafi ekki fengist frá ríkinu. Mér var boðin dvöl á hjúkrunarheimili sem mér fannst fáránlegt, það eru fjölmargir aldraðir sem bíða í sjúkrarúmum eftir slíkri þjónustu og vil ég ekki taka pláss frá þeim. Ég er 48 ára gömul og get vel búið í mínu eigin húsi í Höfnum, fái ég þá aðstoð sem ég á rétt á.

Sósíalistar vilja hjálpa fólki til sjálfstæðis

Þegar Gunnar Smári Egilsson, leiðtogi Sósíalistaflokksins, vakti athygli á máli mínu fóru hjólin að snúast. Mér stóð loksins til boða sú þjónusta sem ég þarf á að halda til að geta búið í mínu eigin húsnæði. En mál mitt er því miður ekki einsdæmi. Fjölmargir einstaklingar, hvort sem eru fatlaðir eða eldra fólk, getur vel búið sjálfstætt fái það þá hjálp sem það þarf á að halda. Slíkt hlýtur að vera mun betra bæði fyrir einstaklinga í þessari stöðu og samfélagið í heild sinni. Sósíalistar hafa sett fram skýrt tilboð um uppreisn öryrkja gegn óréttlæti. Þar segir meðal annars:

„Eitt af markmiðum Sameinuðu þjóðanna með samningnum er að útrýma þeirri stofnanavæðingu sem ríkt hefur undanfarna áratugi með búsetu fatlaðra á sambýlum. Í stað þess að bjóða fólki sjálfstæða búsetu með fullnægjandi stoðþjónustu er allt of algengt að veiku fólki undir 67 ára aldri sé boðin búseta á hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Enn þekkist að fólk sé flutt nokkurskonar hreppaflutningum milli hjúkrunarheimila.“

Þetta er það sem ég fer fram á að ég og fólk í minni stöðu fái. Að við fáum að lifa við sem mest sjálfstæði og með reisn og þurfum ekki að berjast í bökkum fjárhagslega. Ísland er ríkt land. Okkur er ekkert að vanbúnaði; við getum haldið uppi velferð og mannúð svo allir fái notið sín. Ákvörðun okkar sem kjósenda á laugardaginn er því gífurlega mikilvæg. Kjósum því J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Alþingiskosningunum 25. september næstkomandi.

Höfundur skipar sæti á J-lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðurkjördæmi.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram