Gengið til kosninga

Bergvin Eyþórsson Pistill

Kæri kjósandi.

Á morgun göngum við til kosninga og leggjum með því grunn að framtíð okkar, barnanna okkar og barnanna þeirra. Þá er mjög mikilvægt að við höldum halda fókus á þá framtíðarsýn sem við höfum og viljum að verði. Hvernig samfélagi við viljum búa í nú og á morgun og í framtiðinni.

Baráttan hefur hleypt kappi í marga

Sem endranær er þjóðin ekki á einu máli um hvað sé best fyrir hana en flestir hafa það að markmiði að gera lífið betra og sumir vilja meir að segja gera lífið betra ekki bara fyrir sjálfa sig, heldur fyrir alla.

Bent hefur verið á hvað hefur misfarist, hvað mætti gera betur, hverjir hafi gleymst, hverjir hafi mest fengið og hvort lífskjör okkar hafi batnað. Hlaupið hefur kapp í margan manninn og sumt sem sagt hefur verið er alls ekki til eftirbreytni. Halda verður því til haga að þetta á við fylgisfólk allra flokka og tilgangurinn hefur alltaf verið sá sami. Við fylgjum okkar sannfæringu vegna þess að við viljum það sem okkur finnst vera betra samfélag. Það erum við öll sammála um.

Mikið verkefni framundan

Hvernig sem til hefur tekist hjá hverjum og einum er staðreyndin sú að við verðum að vinna okkur inn í framtíðina frá þeirri stöðu sem er í dag og gildir þá einu hverju eða hverjum er um að kenna hvernig hún er nú.

Margt í okkar samfélagi er gott og ber okkur að vinna saman að því að verja það fyrir okkur og þá sem landið erfa. Að sama skapi ber okkur að snúa bökum saman til að bæta það sem þarf að bæta. Þar er því miður af nógu að taka.

Loforð sósíalista

Markmið okkar sósíalista er að skapa betra samfélag fyrir alla. Stórkostlegt samfélag. Og það ætlum við að gera, í samvinnu við þá sem hafa sama vilja og sömu hugsjón.

Áttu ekki samleið með okkur í þessu?

Við ætlum að vinna saman sigra sem eiga eftir að lyfta þjóðinni allri til betra lífs, meira réttlætis, jafnra tækirfæra og jöfnuðar. Þessi markmið sem eru svo einföld og raunhæf og innan seilingar ef við bara höfum kjark og dug köllum við stórkostlegt samfélag.

Sköpum stórkostlegt samfélag fyrir alla en ekki bara suma. – Skiljum engan eftir!

Kjósum með hjartanu. Skilum rauðu!

X-J

Höfundur er frambjóðandi Sósíalistaflokksins í NV-kjördæmi.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram