Framboð Sósíalista í borginni – Símon Vestarr

Laufey Sögur

Símon Vestarr heiti ég og er 41 árs. Ég er söngvaskáld, rithöfundur, kennari og þýðandi. Ég hef verið meðlimur í Sósíalistaflokknum frá stofnun hans en hef alla tíð verið sósíalisti.

Eins og margir Íslendingar hef ég reynslu af því að basla við að láta tekjurnar endast mánuðinn í fullu starfi og veit af eigin raun hversu lýjandi afkomuóöryggi er.

Sósíalistaflokkurinn er eina framboðið í þessum sveitastjórnarkosningum sem er með raunhæfa stefnu í húsnæðismálum. Stefnu sem tekur mið af þeirri staðreynd að gróðabrask á fasteignamarkaði er vandamálið og að eina lausnin sé óhagnaðardrifin húsnæðisuppbygging.

Við viljum sanna Reykjavík – borg sem er ekki bara hugsuð fyrir þá sem lifa á fjárfestingum sínum heldur líka fyrir okkur hin sem höfum ekkert að selja annað en vinnuaflið.

Grunnþjónustuna þarf að styrkja svo að fleiri en hinir vel stæðu geti notið sín í höfuðborginni. X við J er eina vitið.

Símon Vestarr býður sig fram fyrir Sósíalista í Reykjavík þann 14. maí.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram