Stefna í húsnæðis- og heilbrigðismálum, lýðræðisvakningu og málefnum sameiginlegra sjóða
Frétt
20.01.2018
Á Sósíalistaþingi var lögð fram stefna í fjórum málaflokkum sem mótuð hafði verið af slembivöldum hópum félagsmanna; húsnæðismálum, heilbrigðismálum, lýðræðismálum og málefnum opinberra sjóða. Félagar í hópunum ræddu málin, hlýddu á sérfræðinga og fólk sem deildi reynslu sinni af viðkomandi kerfum og töluðu sig niður á stefnumarkmið. Niðurstaðan var borin undir Sósíalistaþingið, sem samþykkti stefnuna:
Húsnæðismál: Stefna Sósíalistaflokks Íslands er …
- að húsnæðisöryggi sé tryggt á öllu landinu. Öruggt húsnæði er ein grunnforsenda velferðar.
- að tekin verði upp langtíma húsnæðisstefna og nýtt húsnæðiskerfi sem tekur mið af ólíkum þörfum mismunandi þjóðfélagshópa. Hafist verði handa við mótun þeirra strax.
- að sett verði á laggirnar nútíma verkamannabústaðakerfi, samvinnufélög um húsnæðisbyggingar og rekstur þeirra sem og opinber leigufélög sem ekki eru hagnaðardrifin.
- að réttindi leigjenda séu tryggð og stuðlað að traustum leigumarkaði með langtímaleigusamningum og reglum um þak á leiguverði.
- að námsmönnum í háskóla-eða fagnámi verði tryggt húsnæði á nemendagörðum.
- að skylda öll sveitarfélög til að tryggja lágmarksfjölda félagslegra íbúða miðað við íbúafjölda auk þess að mæta bráðavanda.
- að byggingareglugerðum verði breytt í samræmi við ný og fjölbreytt búsetuform (samvinnubústaði, smáhýsi og nýjar útfærslur á búsetuformum).
Heilbrigðismál: Stefna Sósíalistaflokks Íslands er …
- að á Íslandi verði gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta rekin af skattfé borgaranna.
- að unnið verði gegn allri markaðsvæðingu í heilbrigðisþjónustu og jafnvægi komið á þjónustuna miðað við þarfagreiningu.
- að unnið verði markvisst að eflingu heilsugæslunnar.
- að sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði samþykktur.
- að notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) verði notuð á markvissan hátt við þjónustu við fatlaða.
- að skýrsla Sameinuðu þjóðanna um geðheilbrigði (júní 2017) verði virt.
- að unnið verði samkvæmt langtímamarkmiðum í heilbrigðisþjónustu og fjármagn til heilbrigðismála og reksturs Landspítala Háskólasjúkrahúss verði í samræmi við kröfur um nútímavædda heilbrigðisþjónustu.
- að lyfjakostnaður verði að fullu niðurgreiddur og lyfjaverslun almennings sett á fót, með sterku gæðaeftirliti og bestu lyfjum sem völ er á.
- að forvarnir og lýðheilsa verði efld og stuðlað að því að ríkið veiti þá þjónustu.
- að komið verði á fót embætti umboðsmanns sjúklinga.
- að geðsvið Landsspítala Háskólasjúkrahúss, sem og Barna- og unglingageðdeild verði efld og geti sinnt eðlilegri neyðarþjónustu.
- að endurhæfing sé ávallt í boði fyrir langveika, sem vilja bæta heilsu sína og lífsskilyrði.
- að öldruðum sé tryggð þjónusta við hæfi hvort heldur með heimahjúkrun, plássi á hjúkrunarheimili eða sjúkrastofnun.
- að heilsugæsla og sjúkrahúsþjónusta á landsbyggðinni verði efld og þau sjúkrarými, tæki og búnaður sem þar er til staðar verði nýttur sem kostur er og að fjarlækningar verði efldar.
- að starfsumhverfi heilbrigðisstarfsmanna verði bætt og teymisvinna efld.
- að grundvöllur velferðar og heilbrigðis sé einnig tryggður með öðrum nauðsynlegum umhverfisþáttum svo sem réttlátu og góðu húsnæðiskerfi, menntakerfi, atvinnulífi og launastefnu sem og almannatryggingakerfi.
Lýðræðismál: Stefna Sósíalistaflokks Íslands er …
- að jöfnuður sé hornsteinn lýðræðis.
- að réttlátt kosningakerfi verði tryggt með jöfnu vægi atkvæða óháð búsetu.
- að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslna séu ávallt virtar.
- að ný stjórnarskrá taki gildi hið fyrsta.
- að lýðræðismál séu hluti af grunnmenntun.
- að aðgengi almennings að áreiðanlegum og réttum upplýsingum verði tryggt.
- að lýðræðisvæða verkalýðsfélög og lífeyrissjóði.
- að rekstrargrundvöllur öflugra félaga í þágu almannahagsmuna, svo sem samtökum neytenda af hvaða tagi sem er, verði tryggður.
- að náttúruauðlindir verði ávallt í eigu þjóðarinnar.
- að lýðræðisvæða vinnustaði og stjórn fyrirtækja.
Sameiginlegir sjóðir: Stefna Sósíalistaflokks Íslands er …
- að sameina hin sundurleitu kerfi bóta og lífeyris í eitt almennt tryggingakerfi svo tryggja megi öllum mannsæmandi líf.
- að einfalda tryggingakerfið.
- að námsstyrkir komi í stað lána.
- að skattrannsóknir og opinbert eftirlit á fjármálakerfinu verði eflt og beint í auknum mæli að fjársterkum aðilum og stórfyrirtækjum.
- að skattkerfið verði nýtt sem jöfnunartæki.
- að stutt verði betur við barnafjölskyldur með hærri barnabótum.
- að gjöld fyrir opinbera grunnþjónustu verði afnumin. Arðurinn af auðlindum verði þjóðnýttur.