Efstu sætin í Suðvesturkjördæmi
Tilkynning
29.10.2024
Félagsfundur Sósíalistaflokksins samþykkti einróma í dag 2. og 3. sæti á framboðslista í Suðvesturkjördæmi
Í 2. sætið: Margrét Pétursdóttir, utanskólamenntuð verkakona sem hefur unnið með börnum og gamalmennum og aldurshópum þar á milli. Margrét hefur unnið margvísleg sjálfboðaliðastörf og verið með fólki á verstu og bestu stundum lífsins og samsamað sig með flestum þeirra. Hún er róttækur aktivisti í umhverfismálum og félagi í náttúruverndarsamtökum og hefur starfað með þeim í aktivisma.
Í 3. sætið: Sara Stef Hildardóttir, fyrrum blaðamaður, bókasafns- og upplýsingafræðingur, femínisti og baráttukona. Hún hefur gengt trúnaðarstörfum fyrir Sósíalistaflokkinn, nú sem varaformaður framkvæmdastjórnar og áður sem gjaldkeri.
Oddviti framboðslistans í kjördæminu er Davíð Þór Jónsson