Sósíalistaflokkurinn tekur þátt í nýju samstarfi um stjórn borgarinnar
							
														
							
							
							—
							
							Tilkynning
							
22.02.2025
							
							
						
 
						
						
					Samstarf Sósíalistaflokks Íslands, Samfylkingar, Pírata, Vinstri grænna og Flokks fólksins tók gildi á fundi borgarstjórnar þann 21. febrúar þegar nýr meirihluti var myndaður. Af því tilefni mun borgarstjórnarflokkur Sósíalista kynna nýjan samstarfssáttmála þar sem húsnæðisuppbygging og örugg heimili fólks eru lykilmál nýs samstarfs í borginni. Samstarfssáttmálann má lesa í heild sinni hér: https://reykjavik.is/sites/default/files/2025-02/samstarfsyfirlysing.pdf
Kynning á samstarfssáttmálanum og verkaskiptingu fer fram sunnudaginn 22. febrúar 2025 klukkan 17:00 í Vorstjörnu – Alþýðuhúsi, Bolholti 6, 105 Reykjavík. Aðgengi er að húsinu norðanmegin á jarðhæð. Fyrir þau sem komast ekki á staðinn er hægt að taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað: https://zoom.us/j/5751158534 (lykilorð ef beðið er um: 010517).

