Bókun Sósíalistaflokks Íslands við tillögu að fyrstu aðgerðum Reykjavíkurborgar til viðspyrnu vegna COVID-19

Sanna Magdalena Mörtudóttir Pistill

Ég er ekki með atkvæðarétt þar og verð að segja að ég skil ekki þennan samstöðubát sem allir eru allt í einu komnir á í stjórnmálum. Styð allt sem er gott en það þýðir þar með ekki að ég standi með öllum flokkum í borgarstjórn með andstæða pólitíska sýn en ég og hendi gagnrýni minni út um gluggann. Sendi rafrænt knús til ykkar og vona að samfélagið sé að fara vel með ykkur. Hér er bókunin:

Sveitarfélögin sinna gríðarlegri mikilvægri þjónustu í nærsamfélaginu líkt og skólaþjónustu, þjónustu við eldri borgara, fatlað fólk, börn og einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Kórónavírusinn og afleiðingar hans leggur mikið álag á þá þjónustu sem fyrir er og kallar á aukna þjónustu vegna einangrunar fólks, tekjumissis, kvíða og annarra fylgifiska ástandsins. Fulltrúi sósíalista telur mikilvægt að Reykjavíkurborg verði leiðandi meðal sveitarfélaga í að krefja ríkið um aukið fjármagn til að sinna þjónustu á vegum sveitarfélaganna. Viðbragð hins opinbera gagnvart faraldrinum og efnahagslegum afleiðingum hans á ekki síst að vera innan nærsamfélagsins og þar með á vettvangi sveitarfélaganna. Hvað varðar lækkun fasteignaskatta á atvinnulífið, þá telur fulltrúi sósíalista að tillagan sé vanreifuð. Hvernig á að mæta töpuðum tekjum? Með auknum álögum á almenning, aukinni gjaldtöku eða með skertri þjónustu? Ef borgarfulltrúar telja fasteignagjöld óréttláta skattheimtu verða þeir að leggja fram tillögur um hvernig betur verður staðið að gjaldtöku af fyrirtækja- og fjármagnseigendum fyrir þá þjónustu sem þeir þiggja af borginni. Yfirstandandi hamfarir eru ekki tilefni til að þrýsta í gegn óskalista nýfrjálshyggjufólks um lækkun skatta á fyrirtækja- og fjármagnseigendur. Varðandi uppbyggingu húsnæðis þá minnir fulltrúi sósíalista á tillöguna um að Reykjavíkurborg stofni byggingafélag, slíkt skapar störf og húsnæði fyrir þau í mestri þörf.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram