Greinargerð borgarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands með umræðu um mansal

Sanna Magdalena Mörtudóttir Tilkynning

Borgarstjórn Reykjavíkur

19. janúar 2021

Fulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur til að umræða fari fram í borgarstjórn um mansal. Hvaða aðgerðir hefur Reykjavíkurborg til að vinna gegn þeirri ömurð sem slíkt er? Hvernig getur borgin sem höfuðborg landsins og stærsta sveitarfélagið unnið að því að aðilar sem eru fórnarlömb mansals og hafa óskað eftir alþjóðlegri vernd, eigi ekki á hættu á því að vera vísað úr landi?

Þó svo að Reykjavíkurborg fari ekki með málefni Útlendingastofnunnar þá getur hún hvatt ríkisstjórn til þess að sýna aukna mannúð þegar kemur að því að veita einstaklingum alþjóðlega vernd hér á landi. Bjarkarhlíð hefur verið falið að halda utan um umsjón með framkvæmdarteymi um mansalsmál. Í þessu samhengi má setja fram viðræður eða tillögu um að borgin leiti til ríkisins og bjóðist til að taka á móti fólki þar sem rökstuddur grunur er um mansal og veiti því húsnæði og framfærslu ef þörf er á.

 

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram