Sjávarútvegur í nýju umhverfi

Kári Jónsson Pistill

Hvernig sér kvótasetti-strandveiði-sjómaðurinn og kvóta-litli/lausi útgerðarmaðurinn líf sitt og fjölskyldu sinnar eftir 5-ár viðmiðið er óbreytt kvótakerfi og að vera HÁÐUR ríkistyrktu-einokunar-útgerðinni um nýtingarrétt sem kostar formúgu og hinsvegar DAGA-kerfi (óframseljanlegir) með allann fisk seldan á fiskmarkaði, ásamt frjálsum-handfæraveiðum.

Ég hvet ykkur sem tilheyrið þessum hópum (strandveiði og kvótalitlir/lausir) að gefa ykkur tíma til að hugleiða þessa umbreytingu, að vera ekki HÁÐUR einokunar-útgerðinni um lífsafkomu, að vera laus við atvinnu/afkomu-ofbeldi og fáránlega hátt verð á nýtingarrétti/aflaheimild.

Ávinningurinn er augljós fyrir allt samfélagið/þjóðfélagið.

  1. Auðlindar-rentan flæðir á nýjan leik um æðakerfi þjóðarinnar, en verður ekki eftir í skattaskjólum og með tilheyrandi ruðningsáhrifum hjá öðrum atvinnugreinum.
  2. Hærri tekjur fyrir útgerð og sjómenn.
  3. Hærri tekjur fyrir ríki og bæ.
  4. Umtalsvert meiri og nákvæmari upplýsingar um afraksturgetu fiskistofna, vegna þess að allur afli skilar sér í land.
  5. Nýliðun í útgerð í öllum skipaflokkum.
  6. Grisjun fiskistofna sem tryggir vöxt og afraksturgetu fiskistofna.
  7. Ráðherrar/þingmenn/bæjarfulltrúar ásamt almenningi er laus undan HELSI sæ-GARKA.

Höfundur er félagi og frambjóðandi Sósíalistaflokksinns (xJ) í Suðurkjördæmi.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram