Stöðugleikinn og Titanic

Sigurður Hreinsson Pistill

Á hátíðar og tillidögum fáum við að heyra að við séum öll á sama bát. Jú og þegar auka þarf byrgðarnar á okkur almenningi. En er það svo, erum við öll á sama báti og hvernig fleyta er það þá? Eina raunhæfa samlíkingin sem ég fæ séð, er Titanic eftir að hann lenti á ísjakanum.

Hægt en örugglega sígur skipið tommu fyrri tommu, neðar í hafflötinn. Fólkið á neðstu farrýmunum, kyrfilega læst á sinni hæð í samfélagsstiganum drukknar eitt af öðru á sama tíma og yfirstéttin situr enn við hlaðborðið. Og þannig tikkar tíminn, í fullkomnum stöðugleika sígur skipið neðar og neðar, hafið gleypir fleiri og fleiri hæðir af lægri farrýmunum með húð og hári á meðan elítan spilar fjárhættuspil á efstu hæðunum.

Grátlegt er að þessi lýsing á vel við íslenskt samfélag í dag. Aldraðir, öryrkjar og lægst launuðu stéttirnar eru bókstaflega að drukkna! Endalausar lýsingar og sögur hafa verið að birtast undanfarið um að stórir hópar samfélagsins eigi ekki fyrir mat út mánuðinn, geta ekki leyft sér að leita meina sinna bót hjá lækni eða leysa út lífsnauðsynleg lyf. Græðgisvæðing húsnæðismarkaðins býr til fjölda dæma um fólk sem neyðist til að búa í iðnaðarhúsnæði, hjólhýsi eða bílum sínum, því annars færu öll mánaðarlaunin í húsaleigu.

Og við eigum að horfa fram hjá þessu, af því að hann Steini er að græða svo rosa mikið. Já eða hann Árni sem keypti hlutabréf fyrir 20 þúsund og seldi þau aftur fyrir 456 milljónir, á sama ári. Og ekki megum við trufla þá við að græða, með því að heimta að þeir borgi til samfélagsins sanngjarnan skerf eins og við hin, almúginn.

En góðu fréttirnar eru að þetta þarf ekki að vera svona, við getum vel breytt þessu. Við getum skapað á Íslandi stórkostlegt samfélag. Samfélag þar sem allir geta fengið að njóta fullra mannréttinda og lifað í reisn.

Grípum tækifærið í alþingiskosningunum 25. september og veljum betra samfélag. Ekki vera á Titanic.

Setjum X við J.

 

Bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ og 3. maður á lista Sósíalistaflokksins í NV-kjördæmi.

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram