Kristján: Aðstæður mínar eru vægast sagt ömurlegar

Hin Reykjavík

33. Kristján Hafsteinsson
Hin Reykjavík

„Ég fæddist reyndar í Hafnarfirði en hef búið í Reykjavík í rúma hálfa öld. Skólaganga mín var hvorki ógnarlöng né flókin, ég lauk gagnfræðaprófi og skellti mér í Stýrimannaskólann og lauk þaðan undirbúningsprófi.

Því næst einhenti ég mér í brennivínsdrykkju í ein 19 ár en stundaði samt mína vinnu samviskusamlega, starfaði hjá heildsölu í 17 ár. Síðustu 12 ár hef ég verið vagnstjóri hjá Strætó en í 60% starfi. Heilsa mín leyfir ekki meiri vinnu, heilsuleysið er þó ekki tilkomið vegna samviskusamrar drykkjunnar þá tæpu tvo áratugi sem ég var hirðmaður Bakkusar. Ég lét bara af þjónustu við hann.

Ég veiktist árið 2011 og var frá vinnu í rúmt ár, nú lifi ég af leyfilegri 60% vinnu og 100.000.- kr. greiðslum úr lífeyrissjóði mínum á mánuði. Aðstæður mínar eru vægast sagt ömurlegar, ég leigi 18 m² herbergi í efri byggðum Reykjavíkur. Þar deili ég salerni og sturtu með öðrum íbúum og greiði 60.000.- kr. á mánuði fyrir. Vinn hjá Strætó og ferðast með Strætó.

Ég hef verið á umsóknarlista um íbúð hjá Féló í eitt og hálft ár en ekkert gengur, enda er mér sagt þar að þessar umsóknir skili ekki niðurstöðu fyrir en eftir svona tvö til sex ár! Ég hef því sterkt á tilfinningunni að mér ekki sagt satt. Það er nefnilega töluverður munur á tveimur árum eða sex, ekki satt?

Ég pældi aldrei mikið í pólitík en kaus þó alltaf, aldrei þó fjórflokkinn svokallaða. En að óbreyttu sé ég ekki fram á bjartari dag og mín helstu baráttumál eru og byggð á reynslu annars vegar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem eru í algjörri rúst og hins vegar bætur á félagsþjónustunni eins og hún leggur sig. Núverandi ástand er með öllu óviðunandi og til skammar. Því verður að breyta, í fúlustu alvöru.“

Kristján Hafsteinsson strætóbílstjóri er á framboðslista Sósíalistaflokks Íslands í sveitarstjórnarkosningunum í maílok #valdiðtilfólksins

Kjósið Sósíalistaflokkinn

Stefna

Byltingin verður ekki án þín!

Taktu þátt og dreifðu erindi sósíalisa sem víðast.

Deila á Facebook

Halda áfram